157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

ráðstöfun varaflugvallargjalds.

[11:02]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að átta sig á því að það eru fjárlög ríkisins sem stjórna fjárútgjöldum til ríkisins. Í 41. gr. stjórnarskrárinnar segir að það megi ekki greiða út peninga úr ríkissjóði nema með fjárheimildum ríkissjóðs. Fjárlög trompa önnur lög, þannig er það samkvæmt 41. gr. stjórnarskrárinnar. Það mætti taka þessa umræðu varðandi fleiri umræður sem hafa átt sér stað hér í þingsal. (Gripið fram í: … fjárlög í haust. )Já, við erum með fjármálaáætlun og fjárlög miðast við fjármálaáætlun. Öll útgjöld ríkissjóðs og efnahagsstjórn landsins miðast við fjárlög. Það er það sem skiptir máli. Innviðaráðuneytinu og öðrum ráðuneytum eru markaðir ákveðnir fjárlagarammar í fjármálaáætlun og það eru þessir rammar sem við ætlum að virða í hagstjórn ríkisins. Það er grundvallaratriði. Vissulega getur verið í öðrum lögum kveðið á um fjármögnun og annað slíkt en við fáum peningana samkvæmt fjárlögum. Það eru þau lög sem við erum alltaf að virða á hverjum tíma. Það eru þau sem stjórna landinu, efnahagsstjórn landsins, og það á stoð í 41. gr. stjórnarskrárinnar. Það er grundvallaratriði og það á ekkert að vera að blanda embættismönnum í þessa umræðu.