157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

fjármögnun Fljótaganga.

[11:04]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að það stendur yfir umræða um samgönguáætlun og hefur sú umræða farið ágætlega fram. Mig langar í þessari óundirbúnu fyrirspurn að ræða Fljótagöng við hæstv. innviðaráðherra. Það var áhugavert að heyra svör hans hér áðan við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson, að fjárlög stjórnuðu hér landinu. Þá kemur að spurningu sem ég hef nú spurt hér nokkrum sinnum og ekki fengið svar við svo maður geti skilið það: Hvernig ætlar meiri hlutinn eða hæstv. ríkisstjórn að fjármagna Fljótagöng? Ég fæ hvergi séð að þau séu fjármögnuð, hvort sem það er inni í samgönguáætlun eða þá í fjármálaáætlun, sem er svo sem ekki komin fram enn þá en við höfum tekið umræðu um fjármálaáætlun hér á fyrri stigum. Hvar eru peningarnir í Fljótagöng? Því það liggur fyrir samkvæmt samgönguáætlun að það eigi að hefja framkvæmdir 2027 og er það fagnaðarefni. En eins og hæstv. ráðherra sagði áðan í óundirbúinni fyrirspurn við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson þá eru það fjárlög þessa lands sem ráða för þegar kemur að framkvæmdum. Þar af leiðandi er ég nú að verða eitt stórt spurningarmerki þegar kemur að því hvernig eigi og hvernig hæstv. innviðaráðherra ætli að fjármagna Fljótagöng.