fjármögnun Fljótaganga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu. Það er ekki hókus-pókus, það er alveg augljóst mál. Það sem við erum að gera með innviðafélaginu er að við erum að stofna félag sem er sérfélag, sem er sjálfstætt félag sem kemur að innviðaframkvæmdum í landinu. Þetta félag verður ekki á fjárlögum íslenska ríkisins. Inn í þetta félag ætlum við að setja Fljótagöngin sem framkvæmd undir dótturfélagi. Það sem fer líka inn í félagið eru ákveðin samgöngumannvirki; Vaðlaheiðargöng, Ölfusárbrú og Hornafjarðarfljót, sem eru tekjuberandi. Þar eru rukkuð gjöld og tekjubærar eignir eru færðar inn og það kemur fjárstreymi. Svo verður líka sett eigið fé frá ríkissjóði inn, ég man aldrei hvort það er í 5. eða 6. gr., sem gæti þá verið í fjárlögum á næsta ári, þar sem kveðið er á um eigið fé til þessa félags, en það verður gert í gegnum innviðafélagið. Það er hugsunin. Framkvæmdir við Fljótagöng verða fjármagnaðar af innviðafélaginu. Ég vona að þetta svari spurningunni.