157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

innleiðing reglugerðar um losun frá sjóflutningum.

[11:10]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um fyrirhugaða upptöku svokallaðrar „FuelEU Maritime“-reglugerðar í EES-samninginn sem nú er til umfjöllunar hjá utanríkismálanefnd. Umrædd reglugerð miðar að því að draga úr losun frá sjóflutningum með því að setja stigvaxandi kröfur um minni losun frá skipum og aukna notkun endurnýjanlegra og kolefnislágra orkugjafa og felur m.a. í sér að losun á að lækka í þrepum á næstu áratugum og að gerðar verði kröfur um tengingu skipa við raforku í höfnum frá árinu 2030.

Í áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem utanríkismálanefnd óskaði eftir er þó bent á að við innleiðingu reglugerðarinnar þurfi sérstaklega að meta áhrif hennar á samkeppnishæfni og flutningskostnað með hliðsjón af sérstöðu Íslands. Þar er jafnframt dregið í efa hvort farþega- og gámaskip geti í reynd uppfyllt kröfur um landtengingu árið 2030 nema tryggt verði nægjanlegt aðgengi að raforku í höfnum. Þá er lögð áhersla á að innleiðingin leiði ekki til óhóflegra fjárhagslegra byrða eða annarra neikvæðra áhrifa fyrir hafnir og sveitarfélög.

Spurning mín til ráðherra er því þessi: Telur ráðherra að Ísland sé tilbúið til að uppfylla þær kröfur sem reglugerðin felur í sér innan tilsettra tímamarka?