innleiðing reglugerðar um losun frá sjóflutningum.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að taka upp þetta mál. Þetta er mikilvæg gerð um orkuskipti í sjóflutningum og hér er spurt hvort Ísland sé tilbúið að uppfylla þessar kröfur innan tilsettra tímamarka. Því er til að svara að undirbúningur stendur enn þá yfir og drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar hafa verið unnin og send framkvæmdastjórninni óformlega en samhliða þessu þarf að tryggja nauðsynlega innlenda lagastoð. Gerðin tók gildi innan Evrópusambandsins 1. janúar 2025 en hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn þannig að íslenskar og norskar hafnir hafa tímabundið verið meðhöndlaðar sem hafnir í þriðju ríkjum í skilningi gerðarinnar sem er ekki heppilegt til lengri tíma. Þess vegna verðum við að ljúka upptöku gerðarinnar í EES-samninginn sem allra fyrst. Það þýðir þó ekki að íslensk skipafélög standi alfarið utan regluverksins á meðan vegna þess að þau félög sem sigla innan Evrópusambandsins eða á milli hafna innan Evrópusambandsins og Íslands falla nú þegar að hluta undir reglurnar eftir því hvaða siglingaleiðir er um að ræða, þannig að það er mikilvægt að réttarstaða íslenskra hafna og íslenskra aðila verði skýr og fyrirsjáanleg gagnvart því regluverki sem gildir nú þegar á evrópskum markaði.
Þetta hefur allt saman mjög mikla þýðingu fyrir innviði í höfnum og það er kannski stóra málið vegna þess að frá árinu 2030 er gert ráð fyrir kröfum um að tiltekin farþega- og gámaskip nýti raforku úr landi eða aðra losunarlausa tækni þegar þau liggja við bryggju. Landtengingarkröfur reglugerðarinnar taka samt ekki sjálfkrafa til allra íslenskra hafna heldur beinast fyrst og fremst að tilteknum gámaskipum og farþegaskipum yfir 5.000 brúttótonnum þegar þau liggja við bryggju í höfnum sem falla undir viðeigandi TEN-T viðmið. Þess vegna er núna næsta verkefni að kortleggja nákvæmlega hvaða hafnir, hvaða skip og hvaða siglingaleiðir koma til skoðunar í þessu samhengi á Íslandi, hvaða raforkuþörf þetta getur skapað og hvaða uppbygging er nauðsynleg. Þá þarf svo sannarlega að horfa til sérstöðu Íslands, (Forseti hringir.) m.a. til stöðu hafna, flutningskostnaðar og samkeppnishæfni, og ég kem betur að því hér á eftir.