innleiðing reglugerðar um losun frá sjóflutningum.
Virðulegur forseti. Ég held einmitt að við getum verið sammála um að ekki er hægt að keyra þetta áfram án vandaðs undirbúnings þannig að þetta verður allt unnið í samráði við þá aðila sem málið varðar. Hér eru það innviðir í höfnum sem skipta meginmáli. Kröfurnar verða ekki innleiddar með lagasetningu einni saman þannig að það þarf að leggja mat á stöðu hverrar hafnar. Það er auðvitað þannig að vinna við landtengingar er þegar hafin hér á Íslandi. Faxaflóahafnir hafa t.d. þegar komið upp landtengingum á hluta sinna hafnasvæða, m.a. við Miðbakka og Faxagarð. En hér er líka spurt um aðlaganir og það liggja nú þegar fyrir drög að upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Í þeim drögum er gert ráð fyrir ákveðnum aðlögunum sem eru nauðsynlegar til þess að reglugerðin falli rétt að EES-samningnum og framkvæmd gagnvart EFTA-ríkjunum verði skýr. En það er ekki gert ráð fyrir sérstökum íslenskum aðlögunum á þessu stigi frá FuelEu Maritime reglugerðinni, heldur er áhersla stjórnvalda fyrst og fremst á að ljúka upptöku gerðarinnar í EES-samninginn með skýrum hætti og tryggja innlenda innleiðingu þar sem sérstaklega verður horft til íslenskra aðstæðna og það svigrúm sem reglugerðin felur í sér nýtt.