Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að mæta hér í dag til að ræða við þingheim um orkuöryggi á Vestfjörðum. Vandinn er töluverður og nokkuð flókinn en á sama tíma er brýnt að ná utan um umfangið og fara af stað í þann leiðangur að tryggja raunverulegt orkuöryggi á Vestfjörðum. Ég bað reyndar um þessa umræðu upphaflega í nóvember á síðasta ári og hef beðið spennt eftir því að setja þetta brýna mál hér á dagskrá. Það er kannski tilviljun að við hæstv. ráðherra sóttum Orkuþing Vestfjarða í gær og komum því sjóðheit af því hingað til umræðunnar. Það var að mínu mati alveg prýðisgóður vettvangur til að fara yfir helstu áskoranir sem nú blasa við.
Orkubú Vestfjarða framleiðir um 60% af orkuþörf fjórðungsins og flutningskerfin okkar eru viðkvæm og orðin svolítið lúin svo er dísilknúna varaaflið okkar auðvitað alræmt og vel þekkt um allt land þar sem við búum við mjög dýrt og ótryggt kerfi. Eitt af helstu markmiðum ríkisstjórnarinnar hefur verið að liðka fyrir orkuöflun. Á Vestfjörðum þurfum við hins vegar bæði að framleiða meira af orku og styrkja flutningskerfi raforkunnar. Það er ekki nóg að framleiða orkuna ef hún kemst ekki til fólks og fyrirtækja. Hæstv. ráðherra hefur á þeim stutta tíma sem hann hefur setið sem ráðherra lyft grettistaki í að einfalda ferla og beina fjármagni í jarðhitaleit sem hefur skilað góðum árangri hér á Ísafirði — eða á Ísafirði og Patreksfirði svo dæmi séu tekin. Ég er ekki stödd á Ísafirði en væri alveg til í það samt.
Það eru spennandi hlutir að gerast á Ströndum sömuleiðis. Það er mikilvægt að hafa í huga að Hvalárvirkjun ein og sér leysir ekki raforkumál Vestfjarða. Til þess þarf einnig að klára Hvalárlínu, Miðdalslínu og styrkja tenginguna áfram með Mjólkárlínu 3. Umræðan má því ekki eingöngu snúast um eina virkjun heldur um hvernig við komum Vestfjörðum á sama stað og aðrir landshlutar eru þegar kemur að raforkuöryggi. En, forseti, straumrof og ótryggt rafmagn hefur í reynd töluverð áhrif á daglegt líf fólks á Vestfjörðum. Það eru ekki aðeins óþægindin sem þeim fylgja heldur skemma þau einnig heimilistæki og valda gjarnan fjárhagslegu tjóni á heimilum fjórðungsins. Rafmagnsreikningarnir eru síðan gríðarlega háir og ég veit um hugmyndir og tækifæri sem liggja í skúffum vegna þess að það er einfaldlega skortur á innviðum á Vestfjörðum. Við erum að tala um líf fólks, öryggi, tækifæri, vonir og væntingar. Það er táknrænt að mínu mati að maður keyri yfir Þröskulda þegar maður leggur leið sína vestur á firði vegna þess að við Vestfirðingar tölum mjög gjarnan um að það séu ákveðnir þröskuldar sem blasi við á Vestfjörðum. Þeir liggja í raforkunni og afhendingunni og þeir liggja í samgöngunum. Við þekkjum þessa sögu alveg ágætlega.
Það hafa að mínu mati verið skrifaðar nógu margar skýrslur, gerðar nógu margar sviðsmyndagreiningar og nógu margir starfshópar. Það sem við Vestfirðingar þurfum núna eru aðgerðir og því spyr ég ráðherra í fyrsta lagi: Hvaða aðgerðir hyggst ráðherra ráðast í til að tryggja raforkuöryggi á Vestfjörðum? Í öðru lagi: Telur ráðherra núverandi löggjöf fullnægjandi til að tryggja raforkuöryggi á Vestfjörðum? Ef svo er ekki, hvaða tillögur að breytingum hyggst ráðherra leggja fram? Svo langar mig líka að spyrja um öryggisviðmið: Hvaða öryggisviðmið telur ráðherra að eigi að gilda fyrir raforkuöryggi í landshlutunum? Uppfyllir staðan á Vestfjörðum slík viðmið í dag? Telur ráðherra að ríkið beri skyldu til að tryggja raforkuöryggi sem jafngildir því sem önnur landsvæði njóta? Hafa verið teknar einhverjar formlegar ákvarðanir um undirbúning tvöföldunar eða hringtengingar raforkuflutnings til Vestfjarða?
Í því skyni langar mig líka að velta því upp hvort það sé þörf á því að hafa í rammaáætlun einhvers konar byggðavinkil sem geri það að verkum að það tekið sé sérstaklega tillit til þeirra sjónarmiða þegar um byggðir er að ræða sem eru langt í burtu og þurfa að reiða sig á raforkuöryggi, hvort það þurfi einhvern veginn að hugsa rammann þannig að ákveðnir orkukostir séu skoðaðir sérstaklega með það fyrir augum.