Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu. Hún er þörf og það er með gleði og ánægju að ég tek þátt í henni. Það var eitt af forgangsmálum okkar þegar ég var í ráðuneytinu frá 2021–2024 að sjá til þess og gera það sem við gátum til að Vestfirðir yrðu ekki út undan þegar kæmi að grænni orkuöflun. Við settum af stað hóp og ég sé enga ástæðu til þess að gera lítið úr því þegar menn gera skýrslur með áætlunum sem er fylgt eftir. Ég hvet hv. þingmenn til að skoða niðurstöður þess hóps sem fyrrverandi þingmaður, Einar Kristinn Guðfinnsson, stýrði og kom með 12 tillögur og sem betur fer er ýmist búið að framkvæma þær eða þær eru komnar vel á leið. Á því eru þó heiðarlegar undantekningar. Það sem mér finnst vanta í þessa umræðu er augljósasti kosturinn sem eru vatnsdælur. Það er innflutt óbilgirni að setja andstæðu milli náttúruverndar, umhverfismála og grænnar orkuöflunar. Það vita það allir að með góðum hug er hægt að finna jafnvægi milli grænnar orkuöflunar, af þessum hagkvæmasta orkukosti, og þjóðgarðs. Það er hægt. Auðvitað hefur margt áunnist og hæstv. ráðherra er mjög spar á að segja frá því hvað hefur verið gert. Það var stórkostlegt að við fundum heitt vatn á Ísafirði og á Patreksfirði. Því miður gerðist það ekki á Ströndum en við fórum í fyrsta heitavatnsátakið á þessari öld sem skilaði miklu fyrir alla landsmenn en þó sérstaklega Vestfirði. Við vorum með mikla áherslu á Vestfirði, eðlilega, því við verðum að sjá til þess að Vestfirðir verði ekki út undan.
Virðulegi forseti. Ef menn ætla að leysa vandann (Forseti hringir.) með einföldum hætti er það áfram heita vatnið, það eru smávatnsvirkjanir — ég er ekki að gera lítið úr því sem hæstv. ráðherra er að vísa til — og svo verða menn auðvitað að nýta þann kost sem augljóslega er hagkvæmastur og allir vita og það er Vatnsdalsvirkjun.