157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

Raforkuöryggi á Vestfjörðum.

[11:31]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur, fyrir frumkvæðið að því að efna til þessarar umræðu og fyrir hennar innlegg og hæstv. ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála, Jóhanni Páli Jóhannssyni, þakka ég fyrir að vera með oss í dag og taka þátt í umræðunni og að sjálfsögðu fyrir hans innlegg hér áðan.

Ég fagna þessari umræðu. Hún er mikilvæg og ég tek undir það að það er alveg nóg komið af skýrslum. Nú er bara kominn tími aðgerða. Það er virkileg þörf á aðgerðum. Hversu oft ætli maður hafi heyrt eftirfarandi: Rafmagnslaust á Vestfjörðum, unnið er að viðgerð, keyrt á varaafli? Allt of oft. Við heyrum allt of oft svona fréttir. Það er náttúrlega þekkt að allt aðflutt rafmagn til Vestfjarða kemur með einni línu, Vesturlínu, sem er 161 km, að mig minnir, að lengd og liggur yfir svæði sem er bæði veðurfarslega og landfræðilega erfitt. Þrátt fyrir þessa sérstöðu hefur það gengið hægt og erfiðlega að koma virkjunum á svæðinu í framkvæmd. Á Vestfjörðum hefur afhendingaröryggi rafmagns þannig því miður verið lakara en annars staðar á landinu. Vestfirðingar eru háðir innflutningi á raforku af meginflutningskerfi landsins og þaðan fá þeir stóran hluta þeirrar raforku sem notuð er í landshlutanum. Hefur þessi staðreynd verið talin einn helsti vandi Vestfirðinga í raforkumálum, þ.e. afhendingaröryggi orkunnar vegna þessarar stöðu. Enginn landshluti á að þurfa að búa við slíkt ástand en þrátt fyrir að margir hagkvæmir virkjunarkostir séu á Vestfjörðum hefur því miður ekki náðst sátt um nýtingu þeirra eða ekki verið hægt að koma þeim í framkvæmd. Þess vegna tel ég æskilegt að það verði skoðað hvort það ætti að reyna að tryggja afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum með hringtengingu. Ég vil raunar vekja athygli á því að Miðflokkurinn hefur í nokkur skipti, síðast held ég á 153. löggjafarþingi, lagt fram tillögu til þingsályktunar um nákvæmlega þetta mál, að koma á hringtengingu rafmagns á Vestfjörðum, þannig að sú tillaga er til (Forseti hringir.) og það er hægt að henda henni inn ef menn vilja. Síðan vil ég að lokum vekja athygli á góðri og upplýsandi skýrslu (Forseti hringir.) frá KPMG þar sem er að finna samanburðargreiningu á virkjunarkostum Orkubús Vestfjarða, mæli með lesningu á henni.