Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Virðulegur forseti. Vestfirðingar hafa lengi búið við mikið óöryggi í raforku og þurft að treysta á varaafl dísilstöðva þegar rafmagnslaust verður til lengri eða skemmri tíma, sem valdið hefur heimilum og fyrirtækjum miklu tjóni. En ástandið hefur vissulega batnað og það hefur orðið endurnýjun á flutningskerfi og það hafa líka komið til öflugar varadísilrafstöðvar. Framleiðsla, flutningur og dreifing eru þeir þrír þættir sem þurfa að vera til staðar til að uppfylla eftirspurn neytenda eftir raforku þar sem hennar er þörf á og samspil þarf að vera við varaaflið svo tryggja megi orkuöryggi. Mjólkárvirkjun í Arnarfirði er stærsti raforkuframleiðandinn á Vestfjörðum og aðrar smærri virkjanir eru til staðar, eins og t.d. Þverárvirkjun í Steingrímsfirði. Jarðhitaleit hefur verið að bera árangur í Tungudal í Skutulsfirði og á Patreksfirði, sem skiptir miklu máli fyrir aukið orkuöryggi. Hitaveita hefur t.d. verið á Suðureyri í hátt í fjóra áratugi. Hitaveita er á Reykhólum og á Drangsnesi en ekki hefur fengist nægt vatn á Tálknafirði til að leggja hitaveitu í þorpið. Jarðhitaleit hefur í Hveravík í Steingrímsfirði og mikilvægt er að halda áfram jarðhitaleit á þeim stöðum á Vestfjörðum þar sem einhver von er um að finna heitt vatn. Einnig er mikilvægt að nýta þar sem við á möguleika á smávirkjunum, varmadælum og birtusellum. Öll þessi orka dregur úr notkun á rafmagni og kemur sér vel. Til skoðunar hafa verið möguleikar á Vatnsdalsvirkjun sem er í friðlandi Vatnsfjarðar. Hvalárvirkjun er í nýtingarflokki og hugmyndir eru uppi um vindmyllugarð í Garpsdal, sem hugnast mér alls ekki. Nýjar virkjanir á Vestfjörðum eru ekki sjálfkrafa lausnin á raforkuöryggi Vestfirðinga því að engin trygging er fyrir því í hvaða starfsemi sú raforka fer á frjálsum markaði og meiri líkur en minni eru á að hún fari til stórnotenda á suðvesturhorninu.
Gott væri að fá viðbrögð hæstv. ráðherra við því hvernig tryggja eigi að sú orka sem framleidd verður í hugsanlegum virkjunum á Vestfjörðum nýtist á Vestfjörðum en ekki á suðvesturhorninu. Aukin orkuframleiðsla til stórnotenda og gagnavera má ekki vera á kostnað náttúrunnar og verður að vera sjálfbær. Mín skoðun er sú að orkufyrirtækja yfir opinberri eigu ríkis eða sveitarfélaga.