Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, hv. þingkonu í Norðvesturkjördæmi, Maríu Rut Kristinsdóttur, og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í þessari mikilvægu umræðu um orkumál á Vestfjörðum. Velsæld landshluta er í beinu samhengi við orkuöflun og orkudreifingu og hún er forsenda verðmætasköpunar, nýrra atvinnutækifæra, nýsköpunar og svo bara nýrra tækifæra, eins og ég sagði. Það eru gríðarlega mikil tækifæri á Vestfjörðum til atvinnuuppbyggingar. En — já, þetta stóra en — orkuframleiðslan styður ekki við þessi tækifæri. Staðan er nokkurn veginn svona: Flutnings- og dreifikerfi Vestfjarða er veikt. Það er lítil orkuframleiðsla. Vestfirðir framleiða u.þ.b. einn þriðja af þeirri orku sem þeir þurfa bara í dag þannig að við erum að flytja inn tvo þriðju af því afli sem við þurfum til að halda uppi daglegu lífi. Takmörkuð afhendingargeta hamlar uppbyggingu. Vestfirðir búa við lakara afhendingaröryggi, tíðari bilanir og meira rafmagnsleysi en aðrir landshlutar. Orkuskipti og atvinnuuppbygging kalla á meiri getu og orkumál eru bara lykillinn að framþróun svæðisins.
En það eru góðar fréttir. Hvalárvirkjun verður að rísa, sagði hæstv. ráðherra á orkuráðstefnu á Ísafirði í gær og vil ég fagna þessum orðum hans. Þetta eru sterk skilaboð til Vestfirðinga, gríðarlega mikilvæg skilaboð ráðherrans um að hann ætli að leggja sitt af mörkum til að greiða úr þeim flækjum sem hafa torveldað Hvalárvirkjun. Það hvernig kerfisframlag er reiknað hefur torveldað þessa virkjunarkosti. Klausan hefur leitt til þess að virkjunarmöguleikar eins og Hvalá og Austurgil hafa verið gerðir mjög óhagkvæmir. Mig langar að fá að taka eitt lítið dæmi. Kerfisframlag Hvalár samkvæmt núgildandi reiknireglu er tæpir 7 milljarðar á meðan kerfisframlag Hvammsvirkjunar er 3 milljarðar. Þetta eru 22% af stofnkostnaði Hvalár en 4% af stofnkostnaði Hvammsvirkjunar. (Forseti hringir.) Hér er um gríðarlegt óhagræði að ræða og ég fagna því að ráðherra fari að vinna úr þessu óhagræði (Forseti hringir.) sem af þessu hlýst og ég þakka honum fyrir að standa með okkur Vestfirðingum í þessum mikilvægu málum.