Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hér í dag og tekið þátt í þessari mikilvægu umræðu. Ég hygg að við þurfum að halda áfram að tala um raforkuöryggi á Vestfjörðum hér í þessum sal og gera það sem oftast vegna þess að við erum ekki búin að ná að tæma umræðuna hér í dag. Að mínu mati eigum við að líta fram á veginn og ekki horfa mikið til baka. Það sem er gert, er gert. Staðan eins og hún er núna er betri en hún hefur verið oft áður, það er alveg rétt. Eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson sagði hér áðan: Við erum ekkert úrræðalaus, við þurfum bara að framkvæma. Það er svo satt og rétt. Nú þurfum við að taka stórar, djarfar ákvarðanir um það hvernig við leysum orkuna úr læðingi á Vestfjörðum, hvernig við tryggjum að tækifærin fái að vaxa í þessum kraftmikla fjórðungi af því að ég veit það alveg fyrir víst að ef við lækkum þessa þröskulda og tryggjum það að á Vestfjörðum sé trygg raforka og samgöngur góðar og öruggar, þá stendur ekki á Vestfirðingum þegar kemur að því að nýta tækifærin, skapa verðmæti og sækja fram.
Ég vil að lokum þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir sitt frumkvæði. Ég hlakka til að takast á við þau mál sem hæstv. ráðherra kemur með hér inn í þingið og svo inn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Við eigum að spila í sama liði þegar kemur að þessum málum. Ég held að þetta sé ekki flokkspólitískt mál eins og sakir standa á þinginu akkúrat núna. Það er alveg rétt sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom inn á áðan að það getur verið flókið að fara í gegnum þessi mál á þingi. Nýtum tækifærið núna. En ég held að stjórnarandstaðan hafi ekki endilega verið vandinn á sínum tíma heldur meira stjórnarmynstrið og hvernig átökin voru þar innanbúðar. Nýtum tækifærið og förum áfram fyrir Vestfirði.