157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir prýðisgóða yfirferð yfir málin og ítreka þakkir mínar fyrir gott samstarf í nefndinni og mikilvæg innlegg frá hv. þingmanni, t.d. varðandi ferjumál. Þetta snertir auðvitað kjördæmi þingmannsins, eins og í raun kjördæmi flestra þingmanna því að ferjumálin eru í algjörum ólestri, ég held að það sé alveg óhætt að segja það. Allar ferjur sem eru í notkun eru smíðaðar á síðustu öld, hvorki meira né minna, fyrir utan Herjólf IV, sem er sjö ára, ef ég man rétt. Þess vegna var mjög mikilvæg niðurstaða í nefndinni hjá okkur að setja þetta skýrt á dagskrá, að það þurfi að búa til ferjuáætlun, og ég treysti bara á að við munum fylgja því vel eftir saman á komandi þingvetri. Ég var ekki með neina spurningu, mig langaði bara að þakka þér fyrir góð innlegg og ég er viss um að hv. þingmaður vill nýta tímann sem hún fær hér í andsvari til að koma fleirum á framfæri.