157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:29]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir ekki-spurninguna. Ég þakka henni kærlega fyrir mjög fínt samstarf í nefndinni og fyrir að taka sérstaklega upp ferjumálin og ferjuna Baldur. Ég gleymdi að minnast á það í mínu innleggi að ef vegbætur á Kjalarnesi fara inn í innviðafélag, sem við vitum að sjálfsögðu ekki enn þá, þá skapast rými, 6,3 milljarðar, sem hægt er að nýta í aðra hluti. Í nefndaráliti meiri hlutans kemur einmitt fram, og ég þakka hv. þingmanni fyrir að bæta því inn, varðandi Breiðafjarðarferjuna Baldur þá er hún náttúrlega að eldast hratt. (Gripið fram í.) Já, hún er að eldast mjög hratt. Þess vegna þarf að hraða því að ný ferja leysi hana af hólmi. Þess vegna er mikilvægt að það hafi verið sett inn í þennan pott, þ.e. ef Kjalarnes fer inn í innviðafélagið þá skapast einmitt rými til þess að hefja grunnvinnuna að því að það komi ný ferja. Það er mikilvægt að því verði hraðað eins og kostur er.

Varðandi ferjuáætlunina þá mun ekki standa á mér að leggja mitt af mörkum til að vinna að henni vegna þess að ferjuáætlun er gríðarlega mikilvæg. Ef við tökum Vestmannaeyjar sérstaklega út fyrir og sem dæmi þá er staðan þar náttúrlega fullkomlega óboðleg.