157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:31]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir svarið sitt. Varðandi innviðafélagið og þá töflu sem við stilltum upp og drög að breytingartillögu þar sem við vísum til þess að fari Kjalarnes inn í innviðafélagið verði til svigrúm þar sem verður þá hægt að flýta og bæta við mikilvægum framkvæmdum, þá finnst mér bara gott að það komi fram hérna núna og ég ætla að nota tækifærið til að segja, vegna þess að ég hef oft heyrt því fleygt fram hér að þetta sé algerlega bundið við Kjalarnes, að í raun stilltum við þarna upp kostnaðarminnsta verkefninu af þeim sem við stjörnumerktum, að þetta gæti allt eins átt við um aðrar vegaframkvæmdir sem innviðafélagið myndi taka inn til sín sem eru fjármagnaðar í samgönguáætlun. Við tölum auðvitað um Kjalarnes í þessu samhengi af því að við stilltum þessu upp út frá því dæmi að það yrði tekið inn. En þetta gæti átt við um önnur verkefni sem myndu jafnvel losa enn meira fjármagn inni á áætluninni, sem væri mjög spennandi viðfangsefni fyrir okkur í umhverfis- og samgöngunefnd að halda þá áfram að forgangsraða mikilvægum verkefnum. Því að eins og við heyrum svo glögglega hérna í umræðunni, sem hefur verið mjög góð um þetta mál hér í gær og það sem af er degi, þá eru rosalega brýn og aðkallandi verkefni úti um allt land sem þarfnast nýframkvæmda og auðvitað viljum við gera stóra hluti varðandi það að endurnýja ferjuflotann og svo margt fleira, byggja upp hafnir og annað. Þannig að mig langaði bara að heyra aðeins frá hv. þingmanni um hennar viðhorf gagnvart innviðafélaginu og síðan þessum mögulegu kaflaskiptum sem eru að eiga sér stað í sögu samgöngumála á Íslandi þegar við sjáum innviðafélagið verða að veruleika.