samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir seinna andsvar. Hún spyr um skoðun mína á innviðafélaginu. Það á náttúrlega eftir að koma hérna til umræðu í þinginu. Það er, skilst mér, komið úr nefnd. En ég hef haft af því vissar áhyggjur að hæstv. innviðaráðherra, og ég kom inn á það í ræðunni minni áðan, gæti jafnvel bara ákveðið hvað innviðafélagið tekur að sér, hvaða verkefni. Mér skilst að hann plani það að öll jarðgöngin fari þar undir eða eitthvað svona. En ég heyrði hann hérna í andsvörum áðan í fyrirspurnatíma þingsins tala um að einhver jarðgöng sem ekki eru arðbær gætu farið í dótturfélög og eitthvað svona. Ég óttast það svolítið. Ég vil ekki sjá innviðafélag sem verður eitthvert óviðráðanlegt skrímsli. Ég sagði það í ræðu minni áðan að ég legg gríðarmikla áherslu á að vel takist til með uppsetningu þess. Ef vel tekst til með uppsetningu þess, ef þetta væri skilvirkt og — ég hræðist það að innviðafélagið verði algjörlega úr höndum þingsins, það sé bara einhver stjórn sem vílar og dílar um hvaða verkefni það getur tekið á markaðsforsendum. Ég myndi vilja að þingið hefði meiri aðkomu að því hvaða verkefni geta farið undir innviðafélagið. Ég held að það sé mikilvægt að þingið hafi aðkomu að því vegna þess að við erum ekki með bestu reynsluna af ohf., ef það stendur til að þetta verði ohf.-félag.