samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Mig langar í þessari annarri ræðu minni um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 að ræða um sjúkraflugið og mikilvæga innviði sjúkraflugs í landinu og þá kannski út frá þeirri slæmu þróun sem virðist vera í þessari áætlun núna, að það er raunverulega ekki verið að fara eftir þeim þjónustusamningi sem ríkið hefur gert við Isavia um innanlandsflugvelli. Það hefur verið tekið allt það framkvæmdafé og viðhaldsfé út úr þjónustusamningnum sem hefur verið inni í þeim samningi frá upphafi um töluvert langt tímaskeið, árabil. Þetta er mikil afturför vegna þess að við þekkjum það, sem þekkjum málefni flugvallakerfis landsins og innanlandsflugvellina, að eftir að gamla varaflugvallargjaldið var lagt af á tímum vinstri stjórnarinnar 2009–2013, í maí 2011, sem hafði hreinlega staðið undir nýframkvæmdum og viðhaldi flugvallakerfisins á öllu landinu, fyrir utan Keflavíkurflugvöll sem er inni í þessu ohf.-dæmi, þá lítur þetta ekkert alveg nægilega vel út. Þetta var að komast á góðan rekspöl eftir að Alþingi samþykkti lögin um varaflugvallargjald í júní 2023, fyrir réttum þremur árum, það var tekið í notkun 1. nóvember 2023. Þá var farið að taka varaflugvallargjaldið inn sem átti að fara í framkvæmdir við þessa þrjá flugvelli, varaalþjóðaflugvelli, sem eru Akureyri, Egilsstaðir og Reykjavíkurflugvöllur — Isavia ohf. sér í sínum efnahagsreikningi um rekstur Keflavíkurflugvallar — og þá sköpuðust vonir um að hægt væri að fara í viðhald og nýframkvæmdir á minni flugvöllunum í innanlandsflugvallakerfinu og nýta þessar 350–500 milljónir sem voru inni í þjónustusamningnum. Vonir stóðu til þess að geta farið að vinna almennilega á þessari innviðaskuld sem er í fluginu og það kemur fram í meirihlutaáliti umhverfis- og samgöngunefndar að það voru um 16 milljarðar. En nú er afturkippur í þessari þróun. Það er búið að taka framkvæmdaféð til viðhalds og nýframkvæmda úr þjónustusamningnum og einhvern veginn yfirfæra það með furðulegum hætti og taka fjármagn úr varaflugvallarhlutanum og segja að varaflugvallargjaldið eigi að sjá um allt flugvallakerfið, sem er annars í lögum sem voru samþykkt fyrir þremur árum að eigi bara að snúa að þessum þremur flugvöllum. Það eigi raunverulega að færa út það sem lögin segja yfir í eitthvert allt annað drullumakk. Þetta er bara skítamix sem er í gangi. Það er vont þegar framkvæmdarvaldið fer ekki að vilja þingsins, vilja þingmanna, um hvernig þeir eigi að komast úr þessari slæmu stöðu sem skapaðist hérna eftir maí 2011 þegar vinstri stjórnin þá tók út gamla varaflugvallargjaldið. Um það snýst þetta mál núna og þær breytingartillögur sem sá sem hér stendur hefur lagt fram við samgönguáætlunina.
Ég hafði nú því miður, frú forseti, ekki mikinn tíma til að undirbúa mig fyrir þessa ræðu en bendi þá bara á grein sem ég skrifaði mjög nýlega og hefur birst víða um sjúkraflugið þar sem ég var búinn að búa til mynd af fjölda sjúkrafluga frá mismunandi stöðum á landinu og hvernig það fellur til, hvort sem það er á Bíldudal, Ísafirði, Gjögri, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Þórshöfn, Vopnafirði, Egilsstöðum, Höfn eða í Vestmannaeyjum. Þetta eru staðirnir sem eru inni í þessu kerfi þar sem sjúkraflugum er stefnt frá landsbyggðinni til Reykjavíkurflugvallar. Við þekkjum það vonandi sem flest að raunverulega ástæðan fyrir mikilvægi þess að fólk komist hratt og vel til Reykjavíkurflugvallar og á Landspítalann er að það er engin geta neins staðar annars staðar á landinu en á Landspítalanum til að sinna 10% erfiðustu verkefnum sem koma upp í heilbrigðisþjónustunni, eins og höfuðáverkum, fyrirburum, hjartaáföllum eða ýmislegu tengdu þessu; kransæðastíflu, heilablóðfalli og slíku. Þetta er ástæðan fyrir því að við þurfum að hafa öflugt kerfi og þess vegna er slæmt að fjármögnun detti upp fyrir til viðhalds og nýframkvæmda á þessu kerfi. Ef innviðirnir eru ekki til staðar og þeim er ekki haldið við þá náttúrlega er ekkert sjúkraflug inn á þessi svæði.
Það er ánægjulegt að okkur tókst á þarsíðasta kjörtímabili, framkvæmdin var síðan á síðasta kjörtímabili, að stefna að framkvæmdum á flugvellinum á Blönduósi. Framkvæmdin á vellinum þar, bundið slitlag á vellinum, kom til í þeirri framkvæmdaáætlun sem farið var í í mars 2020 þar sem farið var í ýmsar framkvæmdir út af kófinu vegna atvinnuleysis í landinu. Til að reyna að halda atvinnu gangandi var sett fjármagn í flugvöllinn á Blönduósi. Það var síðasti völlurinn í þessu ferli sem ekki var með bundnu slitlagi af þessum sjúkraflugvöllum. Það var góður árangur af því. Að sama skapi þurfum við að halda áfram að passa upp á þessa flugvelli og líka að veita þá þjónustu sem er nauðsynleg á þessum völlum, að það sé starfsfólk á jörðu niðri til að hjálpa til við aðflugin og gefa veður og slíkt, að það fé komi í gegnum þjónustusamninginn innan lands til Isavia frá ríkinu. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga í þessu. En það eru mikil vonbrigði hvernig málum er fyrir komið eins og hefur komið fram í þessari ræðu.
Svo vildi ég rétt, frú forseti, koma inn á aðra hluti. Eins og komið hefur fram hér í umræðunni þá er þessi samgönguáætlun mikil vonbrigði fyrir okkur, þingmenn í Norðausturkjördæmi, hvort sem það er 15 ára áætlunin, 2026–2040, eða framkvæmdahluti áætlunarinnar næstu fimm ár, 2026–2030. Það er ekki mikið nýtt að sjá á hendi þessarar ríkisstjórnar inn í framkvæmdir í Norðausturkjördæmi. Við höfðum á síðasta kjörtímabili verið að undirbúa framkvæmdir við gömlu brúna við Ófeigsstaði og leysa hana af. Það er nyrðri brúin í Skjálfandafljóti sem er mest í umræðunni, gömul brú, að þar fari framkvæmdir að hefjast von bráðar, bæði við nýja brú yfir Skjálfandafljótið og síðan að breyta veginum, snikka hann til. Leiðin á milli Akureyrar og Húsavíkur styttist um einhverja kílómetra tengt þeirri framkvæmd og það er mikilvægt að það sé komið af stað. En það verður að endurtaka hér, eins og kom fram í ræðu í gær, frú forseti, að hin Skjálfandafljótsbrúin, sem við höfum mikið rætt um og var komin langt í ferlinu hérna 2020–2021, við Fosshól, eða Goðafoss sem kannski fleiri þekkja, er stórhættuleg brú. Nú er búið að færa hana aftur til annars tímabils a.m.k. þannig að við erum ekki að sjá að hún verði tekin í notkun innan tíu ára í það minnsta. Það er ekki gott hvernig það hefur þróast.
Svarfaðardalurinn. Það fellur væntanlega til að setja bundið slitlag þar inn. Þetta er mjór vegur, einbreiður með útskotum. Lagning bundins slitlags og þær framkvæmdir hefjast væntanlega 2028 í gegnum viðhaldspeninga. Ef ég hef ekki minnst á það hér þá er það jákvætt. Það er sams konar sem þyrfti að gerast í Útkinninni. Þar eru mjólkurbú líka. Í Svarfaðardalnum hafa verið byggð upp öflug kúabú á síðustu árum, sjö, átta róbótabú í mjólkurframleiðslunni. Síðan megum við ekki gleyma Eyjafjarðarsveit. Gömlu brýrnar sem eru þar er ekki hægt að nýta almennilega fyrir þung tæki og það er margt sem þyrfti að laga þar. En í grunninn er þetta ekki boðlegt. Eins og við þekkjum með Jökulsá á Fjöllum þá er þetta 15–20 ára bið eftir brú á þjóðvegi 1 út frá því hvernig þessi áætlun er sett upp núna, en hún var komin langt í öllu skipulagi 2014.
Forseti. Ég sé að tími minn er þá búinn að sinni en ég óska eftir að vera settur aftur á mælendaskrá svo ég geti klárað aðra punkta.