samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir fína yfirferð. Ég og hv. þingmaður deilum sama kjördæmi og erum frekar nálægt hvor öðrum í því að fara yfir samgönguáætlun þegar hún liggur fyrir og báðir erum við Þingeyingar þannig að við þekkjum nokkuð vel til. (Gripið fram í.) En ég ætla að fara í eina verkefnið sem er stefnt að, stóra verkefnið í Norðausturkjördæmi, sem eru Fljótagöng. Í morgun átti ég orðastað við hæstv. innviðaráðherra um fjármögnun Fljótaganga. Ég verð að segja að svarið var nú þannig að ég skildi ekki alveg hvert var verið að fara því að þetta blandast náttúrlega inn í innviðafélagið. Aftur á móti er það þannig að Fljótagöng eru óarðbær, þ.e. þegar kemur að því að velta því fyrir sér hvort þau eigi heima í innviðafélaginu eða hvort innviðafélagið þurfi að fara þá leið að búa til dótturfélag. Þá þarf ríkið í framhaldinu að koma með fjármuni inn í það dótturfélag til að það sé hægt að hefja framkvæmdir. Í fjármálaáætlun er þess ekki getið mér að vitandi. Því beini ég þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort hann hafi rekið augun í þetta og sömuleiðis hvort hann hafi verið búinn að kynna sér aðeins það nefndarálit sem liggur fyrir varðandi innviðafélag því að það er mjög áhugaverð lesning þegar kemur að framkvæmdum eins og t.d. í Fljótunum.