samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir þetta andsvar. Ég er einmitt að lesa mig í gegnum þetta frumvarp núna. Hv. þingmaður spyr svo aftur út í breytingartillögur eða nefndarálitið. Það hefur komið fram, frú forseti, varðandi Fljótagöng að það þurfi að gjaldfæra árlega framlag ríkissjóðs sem nemur vöxtum og afborgunum af lánum vegna framkvæmda og gera ráð fyrir því bæði á fjárlögum og samgönguáætlun. Ef hins vegar Fljótagöng falla ekki að verkefnum innviðafélagsins leggur meiri hlutinn áherslu á að þau verði fjármögnuð með hefðbundnum hætti með sérstakri fjármögnun sem sjá má stað í fjármálaáætlun og samgönguáætlun. Hvað þýðir þetta, frú forseti? Miðað við það sem ég er að lesa í frumvarpinu sjálfu þá sýnist mér að hér sé annaðhvort verið að vísa til þess að það fari í svokölluð dótturfélög innviðafélagsins, sem eru þá einhver félög sem stofnuð eru utan um verkefni sem ekki eru talin arðbær. Með öðrum orðum, að umferðin standi ekki undir framkvæmdinni og rekstri hennar. En þó má líka skilja á þessum texta, hv. þingmaður, að þá verði göngin gerð með því sem má kalla hefðbundnum hætti, eins og við höfum gert undanfarin ár, eða áratugi öllu heldur, af því að við höfum ekki gert neitt nýlega. Ég skil þetta þannig. Ég er bara akkúrat í þessum töluðu orðum að lesa mér til um þessi dótturfélög en mér sýnist þetta geta verið eitt af þeim dæmum sem þar eiga við.