157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. En það sem stendur eftir er samt alltaf það sama burt séð frá því hvaða leið verður farin. Það liggur alveg fyrir að Fljótagöng verða ekki arðbær. Þar af leiðandi þarf að koma með opinbert fjármagn úr ríkissjóði í framkvæmdina, það er alveg ljóst. En það sem stendur út af er það að ekki er getið um þetta fjármagn í fjármálaáætlun og ekki í samgönguáætlun. Þá hlýtur maður að spyrja og velta fyrir sér: Hvaðan koma peningarnir? Ég er búinn að þráspyrja að þessu, trekk í trekk, og ég fæ ekki svar. Ég geri mér grein fyrir því að hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson getur sennilega ekki heldur svarað mér. En til þess að þessi mikilvæga framkvæmd geti farið af stað þá verður það að liggja fyrir hvernig á að fjármagna framkvæmdina og mér að vitandi þá liggur það ekki fyrir. En vonandi fáum við svör núna á næstu dögum eða klukkutímum eða hvernig sem það verður þegar við förum að ræða innviðafélagið því að þetta er mjög mikilvægt, gríðarlega mikilvægt. Ég held að það sé mjög jákvætt skref sem verið er að stíga varðandi það sem snýr að þessu innviðafélagi og hvernig yrði horft til þess. Aftur á móti er það þannig að ef framkvæmd er óarðbær þá þarf hún að fara í gegnum dótturfélag sem þarf þá fjármuni, meðgjöf, úr ríkissjóði. Það liggur alveg fyrir.