samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir þessar vangaveltur. Ég skil hvert hv. þingmaður er að fara, ég get heldur ekki fundið hvar gert er ráð fyrir þessu fé. Það virðist hvorki vera í fjárlögum, fjármálaáætlun né heldur virðist það falla algjörlega að innviðafélaginu og í raun og veru alls ekki. Ég held að það sé fyrirséð. Þessi framkvæmd getur aldrei uppfyllt þau arðbæru skilyrði sem innviðafélagið mun líklega keyra á. En eins og ég sagði áðan þá er ég bara í þessum töluðu orðum að lesa mig í gegnum þetta.
Ég sé í 8. gr. heimild til lántöku og fleira. Þar kemur fram að félaginu sé heimilt að stofna dótturfélög um einstök verkefni eða til að afmarka þætti af verkefnum félagsins í samræmi við samþykktir þess og lög þessi. Þetta dugar engan veginn til að svara spurningu hv. þingmanns því að það liggur alveg fyrir að slík framkvæmd væri þá bara peningur beint úr kassa ríkisins og ef þann pening er hvorki að finna í fjárlögum né í fjármálaáætlun þá veit ég ekki, hv. þingmaður, hvar hæstv. ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar sér að finna þetta fé. Ekki gefur stöðugleikareglan svigrúm til að bæta þessu við, það vantar talsvert upp á það. Þannig að ef það á að standa við þetta samkvæmt þessum stofnsamþykktum sem við erum hér að lesa upp í frumvarpi til þessara laga, þá get ég ekki betur séð, frú forseti, en að stöðugleikareglan sé í hættu.