157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:06]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir prýðisræðu og vil halda aðeins áfram með þessa umræðu um innviðafélagið og fjármögnun í samgönguáætluninni, þessa svokölluðu fullfjármögnuðu samgönguáætlun, eins og það hefur verið orðað. Eins og við sáum hér í óundirbúnum fyrirspurnum í morgun, þar sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson spurði hæstv. innviðaráðherra, Eyjólf Ármannsson, út í þetta innviðafélag og fjármögnun samgönguáætlunarinnar, er ljóst að það er margt sem þarf að leysa þar. Við höfum verið með þetta mál í fjárlaganefnd sem snýr að innviðafélaginu. Þegar það mál fer af stað þá eru þetta 190 milljarða framkvæmdir, þrjú verkefni; Sundabraut, Ölfusárbrú og Fljótagöngin. Það er kannski umræðan sem við þingmenn Norðausturkjördæmis höfum verið að velta mikið fyrir okkur, þ.e. fjármögnunin á Fljótagöngum. Það held ég að sé flestum ljóst að tekjustraumarnir af þeirri framkvæmd sem gætu komið til þar væru kannski 10% af framkvæmdinni. Það ættu að koma 90% frá ríkinu inn í þá hugmyndafræði sem er boðuð þannig að ég efast nú satt að segja um að menn muni teygja sig mjög langt með þann tekjustraum, sem þýðir það að af 20 milljarða framkvæmd eru þetta 5 milljarðar á ári, ef við tökum framkvæmdirnar yfir fjögur ár að meðaltali. 10% gætu þá verið 2 milljarðar sem tekjustraumur af gjaldtöku gæti borgað af þeirri framkvæmd, en 90% myndu falla á ríkið. Þannig að ef það á að fara í þessar framkvæmdir á næsta ári þá bíðum við náttúrlega mjög spennt eftir bæði fjármálaáætlun, sem er núna verið að vinna eftir, (Forseti hringir.) og síðan fjárlögum í haust til að fjármagna þessi 90% af verkefninu. (Forseti hringir.)

Hv. þingmaður. Er þetta ekki nokkurn veginn svona sem þetta er, þetta bix móðurfélags og síðan dótturfyrirtækjanna undir því?