157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:08]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson. Ég skil þetta nokkurn veginn eins og hv. þingmaður er að lýsa þessu enda er eiginlega ómögulegt að átta sig á því hvað annað má lesa út úr þessu. Það er líka önnur áhugaverð hlið á þessu máli. Fyrir það fyrsta þá trúi ég ekki að við ætlum að fara að búa til einhvers konar annað ohf., sem mér sýnist við þennan lestur að sé í fæðingu. Ég óttast að það sé það sem er að gerast. Ohf.-in hafa ekki beinlínis verið okkur þægur ljár í þúfu. En svo trúi ég því bara heldur ekki að hið opinbera reikni með því að það sé hægt að fara af stað með þetta verkefni á meðan ekki fást svör við tiltölulega einföldum spurningum, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson spurði ráðherra hér í óundirbúnum fyrirspurnum. Ef hæstv. ráðherra getur ekki svarað því hvaðan peningarnir eiga að koma — og það má glögglega lesa út úr frumvarpinu til laga um innviðafélag að þetta verkefni fellur ekki að þessari hugmyndafræði um innviðafélag, rétt eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson benti á. Það má kannski áætla með einhverjum skekkjumörkum að tekjurnar af framkvæmdinni væru mögulega í kringum 10%. Ég veit ekki hversu nákvæmir svona útreikningar geta verið, hv. þingmaður, en það er kannski einhvers staðar á því bili, en þá er ljóst að þetta fé á að koma annars staðar frá. Dótturfélagahugmyndafræðin er auðvitað ekkert annað en ríkisfé. Svoleiðis að ég skil þetta eins og hv. þingmaður og ég átta mig ekki á því, þó að ég voni svo sannarlega að við höldum áfram að framkvæma, hvernig ráðherra sér þetta fyrir sér og hvernig það gengur upp.