157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:13]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur sem hér eru. Nú er ég bara, hv. þingmaður, að leyfa mér að hugsa upphátt. Ég sé ekki alveg fyrir mér, er að lesa mig í gegnum þetta frumvarp, annað en að hér sé einmitt það að gerast sem við vorum að vona að gerðist ekki, þ.e. að það sé einhvers konar ohf. í fæðingu, sem muni þá ekkert hafa að gera með vilja þjóðarinnar eða vilja Alþingis eða að það verði bara til einhvers konar ríki í ríkinu. Ég óttast það mjög því að ég held að við eigum að forgangsraða samgönguverkefnum eins og öllum öðrum verkefnum. Við eigum að gera það í gegnum þann þjóðarvilja sem birtist í því hvernig kjörgengi einstakra flokka, miðað við sína hugmyndafræði, er hverju sinni, því að það eru fulltrúar þjóðarinnar. En af því hv. þingmaður nefnir lífeyrissjóðina þá er það einmitt gott dæmi um þetta. Ef við nálgumst þetta með þessum hætti, að svona fyrirbæri sé hér í fæðingu, þá verður þetta einmitt þannig, að það þarf að fara að sundurgreina verkefnin því að það verður mismikill áhugi á fjárfestingu eftir því hvert verkefnið er, sem þýðir á íslensku að það er hugsanlega eitt verkefni, kannski tvö, í fyrirsjáanlegri framtíð sem verður fýsilegur fjárfestingarkostur úti á landi. Restin af verkefnunum sem svona félag myndi vilja fjárfesta í er þá á milli Hvítánna tveggja. Ef þessi tilfinning er rétt, að við séum hér að búa til slíkt félag, þá mun það enn verða til þess að auka þessa spennu, sem er nú ekki til góðs fyrir neinn, held ég, milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins. Og minni ég þá aftur á það sem ég nefndi hér í ræðunni áðan, hvaðan stór hluti teknanna kemur, frú forseti.