samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hér erum við búin að hlusta á ágætlega spakar ræður frá þingmönnum, sumum sem kenna sig við Þingeyjarsýslu, og það fer ekki á milli mála hversu loftkenndir þeir eru, og öðrum úr því kjördæmi. Allir eru þessir aðilar, eðlilega í sjálfu sér, með augun á sínu kjördæmi, nærsýnisgleraugun á sínu kjördæmi. Og hér á eftir mér munu koma fulltrúar úr öðrum kjördæmum, Norðvesturkjördæmi, og þá erum við farin að tala um Skógarströnd, Vatnsnesveginn og Vestfirðina og allt frá því að tala um brýr yfir stórfljót og göng, niður í einhver ræsi nánast, sem séu alveg ómöguleg.
Það sem ég er að reyna að nálgast hér, virðulegur forseti, er á hvaða stað við erum í umræðu um þetta eitt mikilvægasta samfélagsmál Íslands sem við stöndum frammi fyrir, stórkostlegt vandamál í samgöngumálum. Ég fór yfir það hér í ræðu minni í gær hversu vel áfram okkur hefur nú miðað samt á undanförnum árum miðað við það að við erum þessi fámenna þjóð í þessu stóra landi. Við höfum gert í raun alveg ótrúlega mikið en við erum aldrei að ná að gera eins mikið og við þurfum að gera. Það er alveg sama hvar er borið niður á landinu í þeim efnum, hvort það er á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrannabyggðum þess eða í hinum einstöku kjördæmum og enn þrengra sjónarhorn á einstaka staði úti á landi; við erum aldrei að ná í skottið á okkur. Og við munum ekki gera það með þessari aðferðafræði sem hér hefur verið stunduð í áratugi í þinginu þar sem kjördæmapot er mjög ráðandi og menn takast á um þessa hluti á milli kjördæma, þvert á pólitíkina. Oftast hefur gengið best þar sem einhver landsbyggðarkjördæmisþingmaðurinn er ráðherra. Hann hefur náð að stýra umtalsvert meiru í sitt kjördæmi á þeim tíma. Því er kannski best að vera með landsbyggðarþenkjandi höfuðborgarþingmenn sem samgönguráðherra. Ég hugsa að það sé besta uppskriftin. En við erum sem sagt í aðferðafræði sem skilar okkur ekki áfram veginn og við verðum að komast út úr þessu, virðulegur forseti. Við verðum að brjótast út úr þessum viðjum. Það er stöðugt verið að gefa fólki fyrirheit hér og þar um landið, alls staðar, hér á höfuðborgarsvæðinu og úti um land: áfangatímabil tvö og þrjú og fjögur sem birtast í samgönguáætlun og einhverjir klóra sér í skallanum og segja: Við erum bara á þriðja tímabili. Sko, þetta er auðvitað ekki boðlegt. En ókei, þetta er þó að koma. Svo kemur ný samgönguáætlun tveimur árum seinna eða eitthvað slíkt og þá eru þessir sömu aðilar komnir í fjórða tímabil, eitthvað komnir fram fyrir. Göngin sem áttu að vera í forgangi á Austurlandi eru allt í einu komin í Fljótin, Siglufjörð. Báðar framkvæmdir algerlega bráðnauðsynlegar, engum blöðum um það að fletta.
Hér er sýnt á einhverjar hugmyndir ráðherrans um stofnun innviðafélags og mér finnst það jákvætt. Mér finnst það jákvætt að menn skuli vera komnir þangað að við erum farin að tala um einhvers konar innviðafélag. En það er auðvitað algerlega vonlaus útfærsla að láta sér detta það í hug að við getum farið í einhverjar framkvæmdir úti í hinum dreifðu byggðum sem eiga að fjármagna sig meira og minna sjálfar með einhvers konar veggjöldum. Kannski er skýrasta dæmið um þetta Vaðlaheiðargöng sem á sínum tíma var farið í af einkaaðilum og ríkið hefur síðan þurft að taka upp á sína arma af mikilli bjartsýni. Þar er þó sú umferð sem þar er miðað við marga aðra staði sem verið er að tala um. Það gengur ekkert upp nema gjaldið verði svimandi hátt, sem það er. Þá leiðir það okkur að því að ástæðan er mjög einföld: Við erum svo dreifð og við erum með lífæð, getum við sagt, velmegunar í landinu sem liggur á góðu samgöngukerfi. Það er bein tenging á milli þess að efla samgöngur og auka hagvöxt í landinu. Þetta eru þjóðhagslega einhverjar mikilvægustu framkvæmdir sem við getum farið í. Það á líka við hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er alveg fáránlegt hvernig Samfylkingin og fylgispakir flokkar hafa haldið hér á samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum með því að banna öll mislæg gatnamót þó að flest slysin séu að verða á ljósastýringargatnamótum í Reykjavík, mesta tjónið, bæði á fólki og eignum. Ég held að ég hafi einhvern tíma látið reikna það út að mislæg gatnamót á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, sem væru bara á plani, þ.e. að önnur akreinin færi undir hina, við værum ekki að byggja mannvirki upp í loftið — ég held að miðað við fækkun á slysum sem mætti áætla af slíkri framkvæmd myndu þessi mislægu gatnamót borga sig upp á þremur árum. Gríðarlega hagkvæmt verkefni. Við þurfum að komast út úr því og fara með þessa innviðafélagshugsun áfram en hún þarf að gerast á miklu stærri skala. Við verðum að mynda hér þverpólitíska sátt og okkur ber skylda til þess að hætta að tosast á um einhverjar leiðir, hálfútfærðar, illa útfærðar, væntingar sem við erum að gefa hér víða um land og fólk er hætt að taka mark á okkur. Við verðum að komast út úr þessu. Við verðum bara í nafni þjóðaröryggis, í nafni þjóðarframleiðslu og aukins hagvaxtar að koma okkur saman um svona þjóðhagslega mikilvæg skref. Það gerist á einhvers konar grundvelli innviðafélags. Það verður ekki vandamál að fjármagna slíkt til lengri tíma en það mun alltaf byggja á því að mjólkurkýrnar í slíku kerfi verða þar sem umferðin er mest. Mismunandi gjaldtaka eftir svæðum, mismunandi gjaldtaka eftir gjaldendum.
Ég fór aðeins inn á þetta í ræðu minni í gær varðandi Hvalfjarðargöngin, þar sem gjaldtakan hætti um mitt ár 2018 af því að hjá því einkafyrirtæki var framkvæmdin búin að borga sig upp, að þar voru síðustu árin tekjurnar af einskiptisnotendum 40% af heildartekjum félagsins. Þeir voru að borga 1.000 kr. Þeir sem keyptu sér 100 ferðir voru að borga 238 kr. Það þótti bara sanngjarnt á þeim tíma þegar við vorum að reikna þetta út. Þegar ég var í samgönguráðuneytinu þá vorum við að reikna okkur út á svona 140–150 kr. fyrir þá sem færu oft um. Það er líka hægt að setja þak á þá sem eru búsettir á þessum svæðum þar sem menn eru að fara oft á milli til að mynda Selfoss og höfuðborgarinnar eða Suðurlands og Suðurnesja og Vesturlands. Það er hægt að setja eitthvert þak, að þú farir aldrei upp fyrir eitthvert ákveðið þak ef þú ert á þeim slóðum og notar þetta mjög reglulega. Það eru alls konar útfærslur og þetta er bara reikningsdæmi sem þarf að setjast yfir og útfæra í eitthvað sem er skynsamlegt. Hinn stóri kostur í vaxandi ferðamannastraumi, þ.e. ef hæstv. ríkisstjórn nær ekki að drepa ferðaþjónustuna eins og annað atvinnulíf sem þau virðast hafa að markmiði að drepa í landinu — þá má reikna með því að einskiptisnotendur, sem að uppistöðu eru erlendir ferðamenn, muni borga 40% af uppbyggingu vegakerfisins í landinu. Með þessari aðferð gætum við farið í miklu hagkvæmari framkvæmdir. Við gætum boðið út miklu stærri verk til lengri tíma. Fjármögnunin er svo fyrirsjáanleg. Innheimtan hefst á meðan framkvæmdatíma stendur. Það er grundvallaratriði. Það lækkar fjármagnskostnað þegar þú ert kominn með mikið fjárstreymi inn í kerfið. Því lengur sem maður talar um þetta og því lengur sem menn hafa haft tíma til að melta þessa leið — sem er engin stjarnfræðileg uppgötvun. Hún er bara nákvæmlega sú leið sem öll löndin í kringum okkur eru að fara. Þetta er ekki flóknara en það. Þá væri hægt að setjast niður með reiknistokkinn, búa til reiknimódel sem sýna það hvernig við getum haft hagkvæma eða sanngjarna gjaldtöku og hversu mikill sparnaðurinn verður þegar upp er staðið fyrir einstaklingana sem eru að keyra, þegar ferðatíminn styttist og umferðaröryggið eykst. Það er grundvallaratriði, virðulegur forseti, ef þessi leið verður farin, og það hefur verið stefna okkar Sjálfstæðismanna allan tímann, að við lækkum önnur gjöld. Það yrði auðvitað að setja til hliðar þetta kílómetragjald sem hefði náttúrlega aldrei átt að koma á. Það væri eðlilegt að lækka vörugjöld á bílum. Þá er ég að horfa til þessara almenningsökutækja sem almenningur er að kaupa sér, fjölskyldubílinn svokallaða. Með því að gera þetta þá tel ég að það væri hægt að ná mjög víðtækri sátt í samfélaginu um þetta. En grundvöllurinn er auðvitað að ná hinni pólitísku sátt og við berum ábyrgð á því hér.