157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:26]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir stemningsræðu. En mér fannst í upphafi ræðunnar hv. þingmaður eins og bóndinn á Barkarstöðum, það hefði mátt ætla að hann væri eitthvað lítill í sér gagnvart þingmönnum Norðausturkjördæmis sem honum fannst augljóslega taka óþarflega mikið pláss í umræðunni. En það er kannski bara mín tilfinning.

Frú forseti. Ég vil byrja á að taka fram að sá hluti ræðu hv. þingmanns sem fjallaði um mislæg gatnamót í Reykjavík, og hann nefndi þar sérstaklega gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar — það eru reyndar önnur gatnamót skammt frá sem koma þar rétt á eftir, held ég, í slysatíðni. Ég held að hv. þingmaður sé nú þegar að skrifa þau gatnamót niður á minnisblaðið hjá sér. Ég tek undir með hv. þingmanni að það hefði verið fyrir löngu síðan, fyrir fjölda ára síðan átt að vera búið að fara í þá framkvæmd og ég er sammála hv. þingmanni að sú framkvæmd væri búin að borga sig upp bara með fækkun alvarlegra slysa.

En mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í útfærsluatriði, hvernig hann sér það fyrir sér ef þetta þróast með þeim hætti sem manni sýnist af lestri þessa frumvarps varðandi þetta innviðafélag, sem er auðvitað órjúfanlegur fylgifiskur samgönguáætlunar, virðist vera, eins og þetta er sett upp, að það verði vilji fjárfesta að verkefnin verði brotin upp, þ.e. að hvert og eitt verkefni verði sjálfstætt. Hvernig sér hann það fyrir sér að brjóta slík verkefni upp og sér hann fyrir sér að sú aðferðafræði nýtist landsbyggðinni? Ef svarið við þeirri spurningu er jákvætt þá myndi ég gjarnan vilja fá að vita í kjölfarið með hvaða hætti hv. þingmaður sér fyrir sér að það hefði jákvæð áhrif á landsbyggðina.