157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:28]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nú engu líkara en að hv. þingmaður, Þingeyingurinn, hafi aldrei heyrt stemningsræðu ef hann telur að þetta hafi verið einhver stemningsræða sem ég var að flytja hér. Hann þarf endilega að kíkja á fund hjá okkur Sjálfstæðismönnum og hlusta á alvörustemningsræðu.

Já, já, þingmenn Norðausturkjördæmis taka pláss í þinginu í þessum málaflokki, þó það nú væri. Ég sagði: Svo koma þingmenn Norðvesturkjördæmis og svo Suðurkjördæmis í kjölfarið og þeir taka auðvitað mikið pláss. En við erum öll með nærsýnisgleraugun á okkur. Við sjáum ekki, að mínu mati, skóginn fyrir trjánum. Og það er það sem ég er að tala fyrir, að menn hefji sig svolítið upp úr þessum hjólförum og átti sig á því að vandamálin sem þeir eru að tala um heima fyrir eiga við um allt land, alveg sama hvar þú kemur, alveg nákvæmlega sama. Alls staðar þar sem við stoppum, þó að við ökum bara klukkutíma frá klukkutíma, þá blasa við okkur nauðsynlegar milljarðaframkvæmdir — milljarðaframkvæmdir, að ekki sé nú talað um viðhaldið. Það er það sem ég er að kalla eftir, að við hefjum þessa umræðu á æðra plan og horfum á stóru myndina og ákveðum hvernig við ætlum að ráðast í þetta verkefni þannig að það verði hægt að ná árangri á næstu árum. Til þess þarf þverpólitíska sátt. Annars er svo auðvelt að eyðileggja þetta.

Varðandi innviðafélagið. Nei, ég var nefnilega einmitt að segja það að ég tel að þessi útfærsla sé ekki lausn á framkvæmdum um hinar dreifðu byggðir vegna þess að þær munu aldrei standa undir því. Það er bara þannig. Það verður að horfa á þetta heildstætt. Við eigum ákveðnar mjólkurkýr þar sem umferðin er meiri. Þar verða tekjurnar meiri og þær verða að flæða um allt land til að við getum ráðist í þetta á þessum nótum. (Forseti hringir.) Grundvallaratriðið verður síðan það í þeirri útfærslu til að fá sátt meðal almennings, að með einhverjum hætti séum við að lækka (Forseti hringir.) ákveðin gjöld á móti þannig að þetta komi ekki mjög íþyngjandi niður á þeim sem oft þurfa að fara um.