samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góð svör. Ég fagna því að hv. þingmaður hnykkir á því að það sé einmitt ekki svona, ef ég túlka orð hv. þingmanns rétt, sem við viljum sjá þessa hugmyndafræði þróast, að hún verði brotin upp með þessum hætti.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann nefndi hér vörugjöldin: Ef við gefum okkur það, hv. þingmenn, að þetta gangi allt saman eftir í einhverri mynd og við förum í stórauknum mæli, stórfelldum mæli jafnvel, að keyra á framkvæmdir sem verða fjármagnaðar með þeim hætti sem hér um ræðir, þá eru það auðvitað viðbótargjöld, enn einn skatturinn sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun leggja á þjóðina, nema til komi að eitthvað annað falli niður á móti. Hv. þingmaður nefndi vörugjöldin í sínu svari hér. Ég spyr bara hv. þingmann: Hvað hugnast honum best að falli niður á móti? Einskiptiskostnaður eins og vörugjöldin? Eða hugnast hv. þingmanni betur að farið verði í endurskoðun á þessu, mér liggur við að segja fyrirbæri eða jafnvel óskapnaði sem þetta kílómetragjald hefur þróast í að vera? Telja má til mun fleiri þætti. Það má nefna kolefnisgjöldin á eldsneyti og eitt og annað sem hægt væri að fella niður á móti, því að ekki getum við endalaust, hv. þingmaður, bætt gjöldum á fólkið í landinu og fyrirtækin. Þannig virkar þetta ekkert. Kakan stækkar ekki við það, sneiðarnar minnka bara.
Að lokum langar mig að spyrja hv. þingmann einnar svona léttrar spurningar, smá gleðibombu fyrir hv. þingmann að svara í lokin: Er hv. þingmaður ósammála mér í því að Norðausturkjördæmi komi áberandi illa út úr þessari samgönguáætlun?