157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:33]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Vörugjöld og tollar eru auðvitað að mati okkar Sjálfstæðismanna einhver skekkja í rekstri ríkisins. Við tókum okkur til á tímabilinu 2013–2016, ef ég man það rétt, og felldum niður alla tolla og vörugjöld af öllum heimilistækjum og öllum slíkum búnaði. Það voru milljarðar sem við lækkuðum í gjöldum á íbúana og við gerðum hér íslenska verslun samkeppnishæfari. Auðvitað er hægt að gera þetta í bílum líka. Við erum að mínu mati með mjög ranga nálgun á því hvernig við leggjum vörugjöld á bíla. Við leggjum mikla áherslu á rafmagnsbíla sem bera engin gjöld, bara virðisaukaskatt. Svo erum við með blendingsbíla, sem við erum með takmarkað af, og svo erum við með jarðefnaeldsneytisbíla sem allir eru farnir að eyða miklu minna en þeir gerðu. Þetta er allt annað umhverfi. Við erum of heilög í þessu ef við ætlum að hafa þjóðhagslega hagkvæmni að leiðarljósi. Auðvitað er mjög jákvætt fyrir okkur að fara meira yfir í rafmagnið út af því að þá erum við að nota innlenda orku og spara gjaldeyri. Kílómetragjaldið er bara bastarður sem engin önnur þjóð í heiminum nýtir. Það er engin þjóð sem ég veit um sem innheimtir notkun á bíl með þessum hætti sem við gerum, enda er þetta í tómu klúðri. Það eru allt aðrar leiðir þekktar og búnaðurinn til að innleiða slíkt er nánast hilluvara sums staðar. Þannig að já, ég tel að það þurfi að verða grundvallarbreytingar samhliða nýrri gjaldtöku, að þurfi að verða grundvallarbreytingar á þessu. Og áfram verða það erlendu ferðamennirnir sem borga svo hátt hlutfall. Það er rúsínan í pylsuendanum í þessu. Norðausturkjördæmi kom illa út, en ég ætla bara að segja það að ég held að það komi bara öll kjördæmi illa út. Eða finnst mönnum að höfuðborgarsvæðið hafi eitthvað komið vel út? Nei, (Forseti hringir.) það sjáum við í umferðinni á hverjum einasta degi þar sem fólk er. Hver er kostnaðurinn við það og hver er mengunin við það? (Forseti hringir.) Og ruglið sem er hérna í gangi. Það er ekkert kjördæmi að koma vel út úr þessu. (Forseti hringir.) Þess vegna verðum við að breyta vinnubrögðum hér á Alþingi.