157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:35]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér í þessari umræðu. Ég verð líka að segja að ég er einn af aðdáendum hv. þingmanns þegar kemur að því hversu mikið hann brennur fyrir samgöngumálum og er að benda á lausnir sem mér falla bara alltaf betur og betur eftir því sem ég heyri þær oftar. Það væri kannski ágætt ef hv. þingmaður myndi kannski fara yfir, hann gerði það kannski í fyrri ræðu sinni sem ég missti af, því miður, hvernig þetta er nákvæmlega útfært. Hv. þingmaður talar um að þar sem umferðin sé mest sé rétt að taka gjald til að borga og greiða fyrir framkvæmdir víða um land og það setji af stað miklar framkvæmdir ef það væri gert. Hann fór auðvitað í sinni ræðu örlítið inn á þetta og ég átta mig á því að það mætir kannski andstöðu, hv. þingmaður, vegna þess að það er komin þreyta í fólk þegar kemur að gjaldtöku, sérstaklega hvað varðar umferð og ökutæki og vegfarendur, vegna þess að það er sífellt verið að kroppa úr öllum hornum hjá þessum neytendum, þ.e. það er kílómetragjald, það er vörugjald, það er kolefnisgjald og það eru alls kyns gjöld, bifreiðagjöld o.s.frv., þannig að það kom svolítil þreyta og svolítið erfitt að tala fyrir einhverjum grundvallarbreytingum í þessu máli. Er hv. þingmaður sammála mér í því að það sé erfitt að tala fyrir breytingum þegar svo er komið eins og í dag, að það er verið að kroppa af fólki úr öllum vösum í raun og veru á sama tíma? Ef hv. þingmaður myndi kannski útskýra örlítið hvernig hann sér nákvæmlega þessar auknu tekjur koma inn.