157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:38]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, hv. þingmaður segir að honum falli þessi umræða betur og betur, þessi leið sem ég er búinn að vera að boða núna í hartnær tíu ár, eftir því sem hann heyrir það oftar. Ég ætla nú bara að segja af því tilefni að ég held að það sé ekkert út af því að Miðflokksmenn séu eitthvað tregari almennt heldur en aðrir, alls ekki, ekki almennt a.m.k., vegna þess að þetta á við um fólk í mínum flokki líka og í öllum flokkum. En það er einmitt þannig að eftir því sem fólk fer að hlusta meira á þetta og velta þessu meira fyrir sér þá sjá menn þetta sem lausnir frekar en vandamál. Þá kemur auðvitað að þessu stóra atriði, hvernig við ætlum að útfæra svona grundvallarbreytingar á gjaldtökunni og hvað það gefur okkur. Þetta er reikningsdæmi. Útreikningarnir sem voru gerðir og yfirlegan sem var í þeirri nefnd sem ég skipaði 2017 í þessu sýndu fram á að við gætum farið í mjög stórar framkvæmdir bara miðað við það að önnur gjaldtaka væri þá óbreytt. Við gætum lækkað vörugjöldin á bílum, það er eitthvað sem ríkissjóður þarf að taka á sig hvort eð er. Við erum alltaf háð vörugjöldum, en að önnur gjöld af eldsneyti og slíku væru óbreytt. Þetta kæmi sem viðbót og það væri horft á þetta sem hagnað í því að hagnaðurinn og sparnaðurinn kæmi til fólksins eftir því sem framkvæmdirnar kæmu. Þú hefur styttri ferðatíma, það eru stórkostlegir peningar sem myndu sparast í því og þú ert með öruggari umferð. Þá vorum við að reikna þetta út á svona 150 kr. Síðan þarf bara að setjast yfir það og reikna það út: Hvert getur einskiptisgjaldið verið? Hverju er það að skila okkur í umferðinni? Og hvað getum við farið með gjaldið niður í fyrir þá sem fara oft um, eitthvert almennt gjald? Og síðan mögulegt þak ef fólk er komið upp í ákveðna upphæð á ári. En auðvitað með því að taka út eins og þetta kílómetragjald og svona (Forseti hringir.) og jafnvel þó að eldsneytið væri eitthvað aðeins hækkað, þá erum við áfram með hvatana inn í umhverfisvænni ferðamáta og eigum (Forseti hringir.) að geta náð miklu meiri árangri. Það er ekki tilviljun að aðrar þjóðir fara þessar leiðir. (Forseti hringir.) Tökum þetta út úr ríkisrekstri.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)