157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:40]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar. Er það þá rétt skilið hjá mér, þegar hv. þingmaður er að kynna þessa hugmynd sína, að hann sjái fyrir sér að það verði strax farið í að setja á gjaldtöku á t.d. þessum stóru leiðum út frá höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesbrautinni, Suðurlandsveginum, Vesturlandsveginum og jafnvel fleiri stöðum og hugsanlega innan bæjar? Þetta eru svo sem ekkert nýjar hugmyndir, en menn hafa farið í kringum þetta, eins og ég myndi vilja orða það, eins og köttur í kringum heitan graut. Hann er að tala um að það verði strax hafin gjaldtaka áður en í raun og veru þessar leiðir verða lagaðar eða uppfærðar, sett á t.d. mislæg gatnamót, eins og hv. þingmanni var tíðrætt um. Þá komum við kannski að því sem ég hef nú verið að deila örlítið á, að ef maður horfir til Reykjanesbrautarinnar annars vegar og Suðurlandsvegar hins vegar er stór munur þar á. Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna, vegna þess að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar á sér stað með þeim hætti að þar eru mislæg gatnamót, þar eru undirgöng þannig að menn komast í þorpin og aðra staði á allri þessari leið. Ég man ekki hvort það eru 11 undirgöng frá síðasta hringtorgi í Hafnarfirði og inn á hringtorg á Fitjum í Reykjanesbæ, 11 undirgöng eða yfirvegur, 11 stykki. Aftur á móti ef þú keyrir frá Lögbergsbrekku og yfir á Selfoss, hvað eru mörg þar sem hægt er að aka í gegnum? (JGunn: 11 hringtorg.) Trúlega, já, hv. þingmaður, það er kannski alveg rétt, það eru kannski 11 hringtorg. Ég velti þessu oft fyrir mér: Af hverju eru ekki vegirnir byggðir strax frá grunni eins og augljóst er að flýtir fyrir umferð? Kannski er þetta lausnin sem hv. þingmaður er að tala um.