157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:43]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er ágætis ábending hjá hv. þingmanni þegar hann talar um hringtorgin og mislægu gatnamótin. Ég skil ekkert í þessu heldur. Þegar ég var í samgönguráðuneytinu voru byggð ein mislæg gatnamót sem voru við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði, á Reykjanesbrautinni. Ég spurði vegamálastjóra þá af hverju það væru svona bogadregnir flasar í þessu og það væri svona skraut. Hann sagði: Ja, það var bara búið að hanna þetta svona. Ég sagði: En þetta kostar allt of mikið. Ég veit það bara, sem hef nú byggt þrjú hús fyrir sjálfan mig í gegnum tíðina, að allt svona kostar allt of mikla peninga. Ég sagði: Bíddu, af hverju erum við ekki með þetta staðlað, forsteyptar einingar sem koma bara og það er bara hægt að setja þetta niður og gera þetta? Hann sagði: Það er alveg örugglega þannig sem á að gera þetta. Þá kostuðu þessi mislægu gatnamót einhvers staðar innan við milljarð. En á sama tíma kostuðu hringtorg uppi á Esjumelum í kringum hálfan milljarð. Haldið þið ekki að það hefði ekki borgað sig að byggja mislæg gatnamót? Auðvitað. Það er það sem myndi gerast í svona málum. Það kostaði örugglega í dag, núreiknað, ekki undir milljarði, meira, að tvöfalda veginn milli Hveragerðis og Selfoss af því að það voru þrjú útboð, í þremur einingum, í staðinn fyrir að vera boðið út sem eitt verk. Það er a.m.k. milljarður sem hefði sparast. Við erum alltaf í þessum bölvaða bútasaumi sem skilar okkur allt of litlum árangri, kostar allt of mikið. Svona fyrirtæki sem héldi utan um þetta gæti hugsað stærra, gert meira, gert það hraðar og gert betur. En já, grundvallaratriði út frá gjaldtökunni er að gjaldtakan fari strax af stað, ekki bara á þessum leiðum hér suðvestanlands heldur um allt land. Það er grundvallaratriði til að ná sátt að þetta dreifist jafnt á alla landsmenn hvar sem þeir fara. (Forseti hringir.) En það er auðvitað mesta umferðin á þessum svæðum og það verða mjólkurkýrnar í svona kerfi.