samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Samgönguáætlun þarf að vera skýr og skilmerkileg en í þetta sinn er flækjustigið sennilega meira en nokkru sinni. Nú hangir áætlunin ekki bara saman við fjármálaáætlun heldur líka nýtt innviðafélag, veggjöld og þar með nýjar fjármögnunarleiðir. En þegar búið er að skoða heildarpakkann er kjarninn þessi: Ríkisstjórnin segir þjóðinni að samgönguáætlunin sé fullfjármögnuð. Á sama tíma segir ríkisstjórnin að stærstu framkvæmdirnar eigi að fara í innviðafélag. Þessar tvær fullyrðingar geta einfaldlega ekki báðar verið réttar á sama tíma. Undanfarin ár hefur almenningur fengið að heyra sömu skilaboðin aftur og aftur, að vegakerfið standi ekki undir sér og innviðaskuld hafi safnast upp. Þess vegna hafi þurft ný gjöld, nýja skatta, hærri álögur og kílómetragjaldið.
Þjóðin hefur alltaf verið beðin um að borga meira af því það ætti að fara í samgöngur en þá hlýtur eðlileg spurning að vera: Hvert fóru peningarnir? Við erum endalaust að innheimta meiri tekjur af samgöngum, vörugjöld, alls konar bifreiðaskatta, við þekkjum þetta, og þessi nýju kílómetragjöld, endalaust ný gjöld á heimili landsins. Samt er verið að segja heimilunum að þau þurfi að leggja enn meira af mörkum, að þetta sé ekki nóg. Þetta er eins og báknið, það fær aldrei nóg. Af hverju eru þá stærstu samgönguframkvæmdir landsins ekki fjármagnaðar innan samgöngukerfisins? Af hverju duga þessar auknu tekjur ekki? Jú, svarið gæti vissulega verið að það sé bara svo mikil innviðaskuld. En það svar er ekki alveg heiðarlegt vegna þess að þessir auknu skattar sem búið er að leggja á fólk og fyrirtæki eru ekki að skila sér að fullu í samgöngur. Þess í stað er farin sú leið að nýta skattana sem var búið að lofa í samgöngubætur í annað og svo er haldið áfram að setja á ný gjöld. Ég er ekki á móti veggjöldum en ég er á móti því að skattleggja allt í botn er viðkemur umferð, nýta peningana í annað og að veggjöldin verði svo bara hrein viðbótarskattheimta. Það er ekki bjóðandi heimilum landsins.
Virðulegur forseti. Hvað segir ríkisstjórnin sjálf? Hún segir að samgönguáætlunin sé innan ramma fjármálaáætlunar. Hún segir að hún sé fullfjármögnuð. Ríkisstjórnin segir að framkvæmdirnar séu komnar á koppinn en svo kemur alltaf eitt lykilorð í umræðuna, innviðafélag. Þá kemur í ljós að Sundabraut, Ölfusárbrú og Fljótagöng eiga að fara inn í innviðafélag og jafnvel fleiri verkefni eru nefnd í sama samhengi. Þá hlýtur maður að spyrja: Ef samgönguáætlun er raunverulega fullfjármögnuð, af hverju þarf þetta innviðafélag? Ef innviðafélagið er nauðsynlegt, hvernig getur samgönguáætlun þá verið fullfjármögnuð? Það er ekki hægt að komast fram hjá þessari mótsögn. Þess vegna er ég að segja þetta hér í annað skiptið, vegna þess að þetta er mótsögn og við þurfum bara að vera heiðarleg með það að samgönguáætlun er ekki fullfjármögnuð.
Ég vil líka taka það fram að ég er ekki á móti innviðafélagi. Reyndar myndi ég vilja innviðafélag utan um meira en bara samgöngubætur. En innviðafélag þarf að virka. Innviðafélag þarf að vera með þeim hætti að kjörnir fulltrúar stýri, eins og í öðrum löndum, hver forgangsröðunin er, hvað er það sem fólkið í landinu vill, ekki það sem þrír stjórnarmenn og mögulega framkvæmdastjóri nýs innviðafélags, andlitslausir embættismenn, vilja? Það er ekki eðlileg forgangsröðun og þannig er það ekki í kringum belti og braut, eins og er talað um, ekki í Færeyjum, hvergi. Það er þing þeirra landa sem stýrir forgangsröðuninni og innviðafélagið vinnur með það.
Þessi ríkisstjórn hefur lagt mikla áherslu á að samgöngur séu forgangsmál. Þess vegna hefur hún verið að leggja þessi nýju gjöld á og réttlætt gjöldin með vísan til uppbyggingar innviða. En við verðum að skoða tölurnar til að sjá hvaða mynd blasir við, hvaða mynd er raunveruleg. Útgjaldarammi samgöngumála hækkar um, held ég, 10 milljarða milli ára og fjárfestingarframlögin um rúma sjö. Það eru vissulega hækkanir en þær skýra ekki hvernig á að ráðast í framkvæmdir sem eru mældar í tugum og hundruðum milljarða. Þær skýra ekki Sundabraut, Ölfusárbrú eða Fljótagöng. Þess vegna þarf þetta innviðafélag, sem við verðum að ræða í samhengi við samgönguáætlun. Í þriðja skiptið bendi ég á að þetta er viðurkenning á því að fjármögnun er ekki til staðar innan þess ramma sem ríkisstjórnin hefur sjálf sett sér. Samgönguáætlun er ekki fullfjármögnuð og það skiptir máli að vera ekki að halda fram svona lykilpunktum inn í umræðuna. Það er stundum eins og ríkisstjórnin vilji njóta allra kostanna í einu. Þegar þarf að afla tekna eru skattar hækkaðir og svo þegar þarf að sýna ábyrgð er vísað í fjármálaáætlunina og þegar verið er að kynna framkvæmdir er vísað í samgönguáætlunina og þegar spurt er hvernig eigi að borga fyrir þetta allt kemur innviðafélagið til sögunnar. Þetta er auðvitað kannski þægilegt pólitískt en það svarar ekki spurningunni.
Þá skulum við líta á þetta í samhengi. Fjármálaáætlunin segir að svigrúmið sé lítið, að við þurfum að sýna aðhald, að við þurfum að vera varfærin, ríkissjóður geti ekki tekið að sér allar þær fjárfestingar sem samfélagið kallar eftir. Við heyrum þetta aftur og það eru rökin fyrir skattahækkunum. En það eru líka rökin fyrir aðhaldi. Það eru rökin fyrir því að ekki sé hægt að gera meira. Þetta er það sem ríkisstjórnin segir okkur ítrekað. En svo kemur að samgönguáætlun. Þá birtist önnur mynd. Þá eru stórframkvæmdir, ný göng, nýjar brýr, nýjar tengingar, ný verkefni um allt land og þegar spurt er hvernig þetta samræmist fjármálaáætluninni fær maður svarið innviðafélag. Ef þar væri látið við sitja þá væri þetta kannski satt því að innviðafélagið á vissulega að sjá um stærstu framkvæmdirnar en þá er ekki hægt að halda því fram að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð.
Frú forseti. Það er ekkert óeðlilegt að fólk sé tortryggið vegna þess að þegar þrjú atriði eru skoðuð saman, fjármálaáætlun, samgönguáætlun og áformin um innviðafélagið, þá virðist hvert og eitt segja sitt. Fjármálaáætlunin segir að svigrúmið sé lítið, samgönguáætlunin segir að framkvæmdirnar séu miklar og svo á innviðafélagið að brúa bilið. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að við tölum um hlutina eins og þeir eru. Ef við viljum að þetta innviðafélag verði okkur heillaspor, og ég held að meiri hluti þingmanna vilji að það verði sett á stofn innviðafélag, þá getum við ekki verið í einhverjum feluleik um að það sé eitthvað annað en það er. Þess vegna hlýtur maður að spyrja sig hvort innviðafélagið sé í raun ekki orðið forsenda þess að samgönguáætlun gangi upp og þá aftur er augljóslega ekki um fjármagnaða samgönguáætlun að ræða.
Tökum Sundabraut sem dæmi. Við erum búin að ræða Sundabraut í áratugi. Nú er hún kynnt sem lykilverkefni en ráðherra hefur jafnframt sagt að hún verði fjármögnuð með veggjöldum, ekki að hluta heldur öllu leyti. Það væri samt áhugavert að skoða hversu oft skattar og gjöld hafa verið hækkuð til að við gætum farið í framkvæmdir eins og Sundabraut. En við erum ekki að tala um framkvæmd sem er fjármögnuð með tekjum sem hafa verið innheimtar áður. Við erum að tala um framkvæmd sem byggir á tekjum sem eiga eftir að verða til. Þá er lykilpunktur að innviðafélagið á að vera svo sjálfstætt að kjörnir fulltrúar, þeir sem voru kjörnir af fólkinu í landinu til að framfylgja ákveðnum stefnum, eiga ekki að koma að málum. Það á að vera andlitslaus stjórn sem á að ráða hvernig félagið verður og hún á að ákveða, væntanlega ásamt starfsmönnum nýs innviðafélags, hvaða framkvæmdir verður farið í og hefur samgönguáætlun, að mér skilst, aðeins til hliðsjónar. Þau sem þar munu starfa geta talið að fyrir þetta sjálfstæða félag sé einhver framkvæmd arðbærust. Þá er augljóslega farið í hana frekar því að félagið á að vera svo sjálfstætt og þá er það eðlileg ákvörðun hjá þeirri stjórn að fara í arðbærasta verkefnið. Þó að Sundabraut kunni mögulega að vera arðbær en ekki arðbærasta framkvæmdin þá getur þetta nýja félag ákveðið að fara ekki í Sundabraut. Það geta kannski bara verið fulltrúar sem kjósa að horfa á eitthvert annað verkefni eða að það sé bara eitthvert annað verkefni sem er arðbærara en það er kannski ekki það sem samfélagið vill. Það vill kannski fara í arðbæra framkvæmd sem heitir Sundabraut. Sú framkvæmd getur verið verulega arðbær og jafnvel arðbærari en einhver önnur þegar horft er á heildarmyndina.
Hvernig erum við búin að hugsa innviðafélagið? Það á að vera á C-hluta ríkisreikningsins svo skuldirnar teljist ekki til ríkisskulda. Af hverju er þá ekki farið í svokallaða BOT-leið, BOT-framkvæmd, að byggja, reka og skila til ríkisins eftir X mörg ár? Þannig var það með Hvalfjarðargöngin sem var frábær framkvæmd, skuldirnar og áhættan er á einkaaðilum en ekki á okkur skattgreiðendum. Það hefur ekki verið sýnt fram á af hverju við förum ekki þessa leið. Þú getur alveg haft þrjár framkvæmdir inni í slíkri leið og þá eru fjármögnunarkjörin ekkert verri hjá þessu félagi heldur en félagi í C-hluta ríkisreikningsins þar sem það er engin ríkisábyrgð þegar um C-hluta er að ræða. Þannig að mér hefur þótt umræðuna um innviðafélagið skorta vegna þess að ég hef ekki séð ástæðuna fyrir því að við erum að velja þá leið sem er farin. Það væri heppilegra ef Alþingi Íslendinga myndi ákveða hvernig þetta innviðafélag ætti að vera en ekki þessi nýja embættismannastjórn og ef það er samstaða hér á Alþingi og svo er ákveðið á Alþingi Íslendinga hvaða framkvæmdir eru í forgangi þá er það innviðafélagið sem mun framkvæma þær og taka málin áfram, þannig að innviðafélagið verður alveg sjálfstætt.
En ef innviðafélagið á að vera alveg sjálfstætt og alveg á markaðsforsendum og það er ástæðan fyrir því að kjörnir fulltrúar megi hvergi koma að, þjóðin má hvergi koma að þessu, af hverju erum við þá að setja þetta upp með þessum hætti í stað þess að láta áhættuna vera á einkaaðilum? Af hverju er þessi ríkisstjórn að setja áhættuna á ríkið í stað einkaaðila þegar ríkið á ekki að hafa neitt um þetta að segja? Það fer ekki saman. Ég neita að trúa því að Ísland eitt landa þurfi að fylgja reglum þar sem skilin eru svo skörp á milli innviðafélagsins og Alþingis Íslendinga að við megum ekkert koma að því þegar öll önnur lönd sem eru með innviðafélag lúta ekki þeim reglum. Öll önnur lönd þar sem ég hef skoðað þetta ákveða sjálf, þing þeirra landa ákveður hvaða framkvæmdir eru í forgangi. Augljóslega er verið að tala um arðbær verkefni sem innviðafélög geta sinnt. Svo er það innviðafélagsins að taka málin áfram en það er ekki innviðafélagsins að ákveða hvaða framkvæmdir er farið í. Það er ekki þannig, hvorki varðandi belti og braut í Danmörku, í Færeyjum, í Þýskalandi né annars staðar, það er ekki einhvers konar sjálfstætt embættismannaapparat, ríki í ríkinu, sem ákveður það upp á sitt eindæmi. Þannig er það ekki.
Eftir þetta þá held ég að verði nú að ítreka að ég er mjög hrifin af innviðafélagi sem myndi leika stórt hlutverk í því að hraða samgönguframkvæmdum og það mætti að mínu viti, eins og ég sagði áðan, í raun og veru vera innviðafélag utan um fleiri mál. En þá skiptir öllu máli að það sé vandað til verka í byrjun og ekki þetta ríki í ríkinu því að þetta þarf að vera skilvirkt félag þar sem er einhver tilgangur með því að taka það annaðhvort alveg út úr ríkisreikningnum eða hafa það á markaðsforsendum. En ef tilgangurinn er bara að hæstv. fjármálaráðherra, sem er ekki kjörinn af þjóðinni, og allt í lagi með það, að akkúrat sá ráðherra vilji leggja allt sem hann getur undir það að þessu mikilvæga félagi sé stýrt af embættismönnum, búið til nýtt ríki í ríkinu, þá tel ég það ekki vænlegt til árangurs.
Við þekkjum öll ohf.-umræðuna. Við vitum öll hvað okkur ber að varast. En við vitum líka kosti ohf.-félaga og hvernig við getum gert þau betri. Það er það sem ég held líka að þessi ríkisstjórn ætti að einbeita sér að. Ég var hérna í umræðu um daginn um ohf.-félögin og ég spurði: Hver er stefna ríkisstjórnarinnar varðandi þessi félög og af hverju er ríkið að eiga sum félög? Þá var ég að benda á að fullt af félögum í eigu ríkisins er í samkeppnisrekstri við einkaaðila, fyrirtæki hér úti í bæ sem þurfa að standa í því að keppa við ríkið. Hver ákvað t.d. að Landsbanki Íslands skyldi fara í tryggingarekstur? Tryggingafélag er bara á samkeppnismarkaði. Nei, það var búið að taka félagið svo langt frá eigandanum að einhvern veginn fór félagið gegn vilja eigandans. Þetta er með svo miklum ólíkindum. Við verðum að hafa vítin til varnaðar þegar við erum að setja upp þetta innviðafélag.
Myndi t.d. einhver vilja að Isavia færi aftur að reka bókabúð eða yrði að vera sjálfstætt að reka veitingastaðina? Myndi einhver vilja það? Nei. Þurfum við ekki bara að hafa skýra línu um það? Ég held að flestir séu sammála um að vilja eiga, t.d. þegar kemur að Isavia, lykilinnviðina, en ríkið þarf ekki að reka Isavia. Ég nefni bara dæmi. Á Kýpur ákvað ríkisstjórnin þar fyrir um 20 árum síðan að bjóða út rekstur á flugvellinum. Af hverju var það gert fyrir tuttugu og eitthvað árum? Það var vegna þess að þá voru þeir að fara af stað í miklar framkvæmdir. Miklar framkvæmdir eru einmitt líka áætlaðar á Keflavíkurflugvelli. Þeir fengu aðila að verkefninu þá sem fóru í útboð, voru virkilega hæfir til að reka flugvöll og þá var gerður mjög skýr samningur, BOT-samningur þar sem komu að aðilar, þeir byggðu upp verkefnið, þeir ráku verkefnið og skiluðu aftur til ríkisins eftir 20 eða 25 ár. Það var mjög skýrt í samningnum hvað ætti að gera. Það átti að stækka allan flugvöllinn. Farþegafjöldinn var ekki svo mikill. Þetta er eyja eins og við. Ég held að hann hafi fimmfaldast. Það var planið að byggja upp. Þau vildu fá meiri túrisma, flugvöllurinn réð ekki við það og þau voru með langtímasýn. Ríkið á Kýpur var ekkert að reka það, ekkert frekar en við þurfum að reka Keflavíkurflugvöll. En ég held að það sé samstaða um að eiga innviðina. Af hverju gerum við ekki svona plan þar sem er breið samstaða um hvernig við viljum hafa flugvöllinn til framtíðar? Núna á að fara að byggja bílastæðahús. Af hverju í ósköpunum ætlar ríkið að gera það?
Því miður er þetta innviðafélag of líkt svoleiðis hugsunarhætti eins og því er stillt upp núna. Ég held að við gætum sameinast um þetta innviðafélag ef við leyfðum því bara að þróast, við fáum hér aðila að borðinu til að gera þetta þannig að það verði best úr garði gert. Það er komin heilmikil góð vinna inn í það hvernig þetta innviðafélag á að líta út. En ég slæ mjög mikla varnagla við því að kjörnir fulltrúar — þeir eiga ekkert að vasast í daglegum rekstri — sem eru kjörnir af fólkinu í landinu, sem vill mögulega Sundabraut, einhverjir vilja borgarlínu — á það ekki að ríma saman hvað fólkið í landinu er að kjósa og hvað stjórnvöld gera? Er í alvöru vilji til þess að það séu aðilar úti í bæ, sem enginn veit hverjir verða, sem eiga að taka ákvörðun um það hvaða verkefni er farið í? Vegna þess að þeir geta ekki tekið ákvörðun um verkefni á öðrum forsendum en algerlega á markaðsforsendum út frá því hvað er arðbærast. En það getur vel verið að það henti landinu betur að innviðafélagið byrji á mjög arðbæru verkefni sem heitir t.d. Sundabraut þó að það væri ekki arðbærasta verkefnið. Alþingi Íslendinga þarf að ákveða röðina á því hvernig verði farið í verkefni og innviðafélagið getur svo tekið við eftir það.