157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:06]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir sína fínu ræðu. Það er augljóst að hv. þingmaður hefur talsvert djúpa þekkingu á því sem hér er um að ræða. Mig langar þó að fá að spyrja um eitt prinsippatriði í þessu máli. Nú liggur fyrir að sú gjaldtaka sem Íslendingar þekkja, eins og Hvalfjarðargöngin, sem hv. þingmaður sagði réttilega að væru frábær, ég held ég hafi það rétt eftir, er svo skýr og svo sanngjörn í því að þeir sem nota viðkomandi framkvæmd greiða fyrir hana. Hér er verið að koma með tillögu um að þú greiðir mögulega á einum vegi fyrir uppbyggingu einhvers staðar annars staðar þannig að ég er að velta fyrir mér hvaða rök hafi verið færð fyrir því að það sé yfirhöfuð sanngjarnt. Er það ekki í rauninni mjög svipað og það væri bara settur á aukaskattur í uppbyggingu innviða eða samgöngumannvirkja? Og eins og hv. þingmaður sagði réttilega þá fær báknið aldrei nóg og við þekkjum hvernig það getur orðið.

Þannig að mín fyrsta spurning til hv. þingmanns er einfaldlega: Hver eru rökin fyrir því að það sé sanngjarnt að það sé greitt sérstaklega fyrir framkvæmd á einum stað sem á að vera einhvers staðar annars staðar?