157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:07]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég sagði að mér fyndust Hvalfjarðargöngin frábær framkvæmd. Spölur eða verkefnið í kringum Hvalfjarðargöngin var svokallað BOT-verkefni þar sem þetta var mjög skýrt. Það var bara þannig að þeir greiddu sem notuðu það og það var hægt að fara aðra leið og það heppnaðist, myndi ég segja, mjög vel. Ríkið er komið með þetta aftur í sína eigu. Ég er ekki alveg viss hvort hv. þingmaður meinti: í gegnum innviðafélagið. Innviðafélaginu verða sett mjög skýr mörk um að það geti ekki fært peninga úr arðbærum verkefnum yfir í óarðbær verkefni. Svo er ekki. En þetta er eitthvað sem þarf samt aðeins að skýra því að svo er verið að tala um að ef þetta er hjá dótturfélagi þá megi einhverjar tekjur fara í óarðbæru verkefnin. Við þurfum að fá það aðeins betur á hreint. En hvort það sé sanngjarnt, ég fæ svar við því í næsta andsvari.