157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:09]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að bæta við að það heyrist hér á göngunum einhvers konar flökkusaga um að það eigi að vera radíus, hvar er greitt og hvar þá framkvæmdir eiga að eiga sér stað. Ég finn þess hvergi merki í neinum gögnum málsins þannig að það væri gaman að heyra sjónarmið þingmannsins gagnvart því.

Seinni spurning mín er varðandi 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins þar sem segir að ráðherra sé heimilt að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum. Mig langar að vita sjónarmið þingmannsins gagnvart því hvernig það samræmist 40. gr. stjórnarskrárinnar, sem segir, þingheimi til upprifjunar: „Ekki má […] taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.“

Það liggur skýrt fyrir í þessu máli að þessar heimildir eigi ekki að færa í gegnum fjárlögin heldur eigi þessi heimild bara að standa sjálfstætt til ráðherra. Ég spyr þingmanninn, ef hún treystir sér til að hafa skoðun á því: Telur hún að það standist þetta ákvæði stjórnarskrár?