157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:12]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar góðu yfirferð hérna. Auðvitað hangir þetta allt saman, innviðafélagið og samgönguáætlun, og ég hefði reyndar talið að það hefði verið betri bragur á því að samþykkja fyrst innviðafélagið og samþykkja svo samgönguáætlun. En látum það liggja milli hluta. Hér liggur fyrir í samgönguáætlun 6,3 milljarða kr. listi. Ef Kjalarnesvegur verður tekinn út úr samgönguáætlun og settur inn í innviðafélagið, og þá er byrjað að rukka veggjöld þar, þá koma 6,3 milljarðar hér sem þarf ekki að fjármagna á samgönguáætlun og fara þá inn. En auðvitað eru það skattgreiðendur sem fjármagna þetta, að sjálfsögðu. En af því að innviðafélagið á að vera ópólitískt og faglega skipað þá er samt pólitíkin farin að reyna að ákveða það að taka 6,3 milljarða. (Forseti hringir.) Og það er kannski „og eða ef“ að hið hlutlausa (Forseti hringir.) faglega ráð muni setja 6,3 milljarða í innviðafélagið með því að taka Kjalarnesveginn út. Hvað finnst hv. þingmanni um svona?