samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta sýnir auðvitað bara að við erum ekki komin nógu langt í þessari hugmynd um innviðafélag. Og þessi samgönguáætlun stenst auðvitað enga skoðun enda er hún ekki fullfjármögnuð. Þetta er bara einhver loforðalisti. Þetta eru bara einhverjar væntingar þessarar ríkisstjórnar og ekki einu sinni væntingar, þetta er bara til að slá ryki í augu fólks, setja upp einhvern lista um að þau séu að gera svo mikið. Þau setja ekki einu sinni inn allt sem þau eru búin að taka af heimilum landsins í gegnum kílómetraskatta, veiðigjöldin og annað. Allt átti þetta að fara í samgöngur en núna eiga allt í einu heimili landsins að greiða meiri skatta. Þannig að ég held að ég verði nú bara að taka undir með hv. þingmanni að mér finnst þetta ekki gott. Það er einhvern veginn verið að reyna að ná utan um einhverja mynd sem gengur ekki upp. Dæmið gengur ekki upp.