157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar fyrra svar. Þetta tengist síðan allt: fjármálaáætlun, innviðafélag, samgönguáætlun. Allt er þetta ein samhangandi keðja. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann, svona í ljósi þess að hér er blásið út að hér sé gríðarlega stór og mikil áætlun í gangi og ef við tökum þessa 361,5 milljarða sem eru núna á framkvæmdaáætluninni, á fyrsta tímabilinu, og deilum því niður eru það 72 milljarðar á ári, 72 milljarðar af tæplega 1.700 milljörðum á fjárlögum. Þannig að það er alveg augljóst að forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í fjármunum er í einhverja allt aðra hluti. Þegar það er sagt að það sé ekki hægt að finna peninga, það er hægt að finna 2,5 milljarða til að fara í Evrópusambandsleiðangur. Það er hægt. Það var hægt að finna (Forseti hringir.) 16 milljarða hér á bílaplani hjá Jysk. Það er hægt að finna peningana víða. Snýst þetta ekki bara um forgangsröðun, hv. þingmaður?