157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:16]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég og Jens Garðar Helgason erum oft sammála. Jú, þetta snýst auðvitað bara um forgangsröðun. En í þessu tilfelli snýst þetta reyndar líka um að það er verið að teikna upp einhverja mynd sem er ekki raunveruleikinn og það erum við ekkert að sjá í fyrsta skipti hjá þessari ríkisstjórn. Grunnurinn er þessi: Ef samgönguáætlun er fullfjármögnuð, af hverju þarf þá innviðafélag? Við skulum í fyrsta lagi vera heiðarleg með það að þessi samgönguáætlun er ekki fullfjármögnuð og þá getum við farið að ræða hvaða framkvæmdir við ætlum að fara í og hvaða framkvæmdir við ætlum að fara í með því að skattleggja fólk meira, vegna þess að ég hef ekki áhyggjur af því að það verði ekki hægt að fá hér innviðafjárfesta að arðbærum verkefnum. En eins og hv. þingmaður benti á þá er það auðvitað bara almenningur í landinu sem borgar fyrir það, hvort sem þetta er inni í innviðafélagi eða samgönguáætlun. Þannig að við þurfum að fá á hreint hvað er raunverulega fjármagnað í þessari samgönguáætlun.