samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir prýðilega ræðu þar sem komið var inn á fjölmörg svið en kannski spurt fleiri spurninga en svarað. Ég held að myndin sé þessi, að þingheimur deili því alveg þvert á flokka að sá rammi, þótt metnaðarfullur sé, sem er í samgönguáætlun dugi ekki til að uppfylla væntingar landsmanna um innviðaframkvæmdir og samgönguframkvæmdir á næstu árum. Það eru mörg stór verkefni sem myndu í raun bara ryðja út meira og minna öllum verkefnum á samgönguáætlun ef þau yrðu sett á dagskrá innan þessa ramma, eins og t.d. Sundabraut sem ég hef nefnt. Hér hafa því flogið fyrir margar og ólíkar hugmyndir um hvernig ætti að bregðast við þessu, m.a. með samvinnuverkefnum, þjóðbraut, sem þingmaðurinn kom að því að leggja fram tillögu um fyrr í vetur, og svo innviðafélagi, sem er langsamlega traustasta og besta lausnin, byggð á erlendum fyrirmyndum, til að koma þessum verkefnum loksins í verk.