samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég held að það hafi ekki verið spurning, en langsamlega traustasta og besta lausnin, segir hv. þingmaður. Það er kannski eitthvað sem ég myndi vilja að við ræddum. Hvernig og af hverju er hún betri en t.d. BOT-leið þar sem áhættan er engin fyrir ríkið? Við erum ekki að leggja neitt til. Það eru algerlega einkaaðilar sem taka áhættuna. Það er eitt sem ég held að við ættum að ræða: Af hverju ekki sú leið? Þá getum við bara algerlega haft stjórn á því. Það er ekki hægt að bera það fyrir sig að við megum ekki hafa aðkomu. Þá getur bara ríkið sagt: Við ætlum að fara í Sundabraut, og þetta verður fjármagnað með BOT og bara einangrað verkefni, leið sem er mjög þekkt og mjög góð. Mögulega er innviðafélag best, mögulega er BOT best, ég veit það ekki. Ég er hlynnt innviðafélögum en ég held að það sé mjög auðvelt að klúðra þeim líka þannig að ég vona að okkur auðnist að vanda vel til verka frá byrjun.