samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta svar. Mínútan entist mér ekki til að setja fram spurningu. En þetta er ein af áhugaverðum spurningum og ég vek athygli á því að í frumvarpi um innviðafélagið er ekki útilokað að fara PPP-leið í völdum tilvikum með einmitt svona „Build-Operate-Transfer“ leið, með leyfi forseta. Reynslan erlendis sýnir þó við samanburð, t.d. á vegum Sund & Bælt í Danmörku, að þessi einkaframkvæmdaverkefni fá heldur lakari lánskjör, eru sem sagt dýrari í fjármögnun, einkaaðilarnir vilja fá arð af sinni fjárfestingu og þeir peningar fara út úr kerfinu. Þessi ríkisfélög eru í raun að nýta allt sem afgangs er, sem er oft ekki mikið en samt umtalsvert af því að stærðargráðan er svo mikil, til að undirbúa þá næstu verkefni. Úr verður snjóbolti sem maður sér t.d. í Danmörku og hefur leitt til þess að Sund & Bælt hefur getað (Forseti hringir.) tekið að sér stærri og stærri verkefni, samfélagslega mikilvæg, sem það hefði aldrei ráðið við áður.