samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka spurninguna. Ég vil bara taka það fram að það er alveg frábært að við getum hér, í minni og meiri hluta, verið að takast á, ræða málin, því að mér hefur oft þótt það skorta. En þetta er eitt atriði sem er búið að vera að halda fram, að BOT fái lakari lánskjör. Í raun og veru er það kannski ekki alveg rétt, held ég, vegna þess að ef ríkisfyrirtæki, sem er ekki með ríkisábyrgð, ætti að fá eitthvað betri lánskjör fyrir nákvæmlega sama verkefni þá þyrfti það einmitt að byggjast á því að það væri gert á einhverjum samstæðugrunni og einhverju eigin fé sem væri inni í félaginu. Þá þarf að taka spurninguna: En áhættan og að liggja með þessa peninga inni versus það að vera ekki með áhættuna og ekkert eigið fé inni? Af því við erum að tala um nákvæmlega sömu verkefni, þá ættu lánskjörin að vera mjög svipuð en þau breytast bara ef við erum að nota eitthvert eigið fé og setja inn í félagið. Þá erum við samt líka að taka áhættu og liggja með eigið fé þar inni.