157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:22]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisræðu. Mjög góð umræða um innviðafélagið og tenging við raunverulega samgönguáætlun, fjármálaáætlun. Það er kannski minna miðað við það sem hæstv. ráðherra innviðamála sagði hér í morgun, að þetta snerist raunverulega allt um fjárlög, fjárlög tækju allt yfir. Þannig var nú hægt að skilja hann hérna í öðru máli, hvernig er litið á það. Ég vil hins vegar bara benda á hvað málið hefur breyst, umfjöllunin, frá því að það var flutt hér. Innviðaráðherra leggur raunverulega upp með í byrjun að þetta sé 190 milljarða framkvæmd, Ölfusárbrú, Sundabraut og Fljótagöng, sem kemur í ljós að það þarf að breyta svolítið strúktúrnum á, þ.e. í meðferð nefndar og við förum að fá umsagnir og annað. Er ekki aðalatriði í málinu að umgjörð laganna sé með þeim hætti að íslenskir lífeyrissjóðir, innviðasjóðir undir lífeyrissjóðunum, og erlendir sjóðir — að löggjöfin sé með þeim hætti að þetta sé freistandi og umgjörðin með þeim hætti að þeir geti hugsað sér að koma inn í verkefnin, inn í svona umfangsmikið verkefni eins og við ræðum hér?