samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Já, ég held að lífeyrissjóðirnir hafi sagt að þeim þóknist ekki að koma inn í svona samstarfsverkefni, vilja bara koma inn í hvert og eitt félag, og maður skilur það mjög vel, frekar en í einhverja pakka. Hins vegar tel ég mikilvægt, ég er nú eiginlega sammála, að umgjörðin þarf að vera þannig að lífeyrissjóðir og erlendir innviðasjóðir geti komið að þessu. En ég tel mikilvægt að við séum ekki að binda þetta bara við íslenska lífeyrissjóði. Ég held að það sé frekar mikilvægt að við bætum þetta þannig að það ýti undir erlenda fjárfestingu vegna þess að við erum að fá svo mikið aukalega, við fáum erlenda fjárfestingu og þekkinguna með henni á þessum verkefnum. Þess vegna er allt í lagi að það séu kannski þrjú dótturfélög og það sé bara hægt að fjárfesta í þeim öllum saman. En ég held að það væri alveg heppilegt líka að geta haft einhverja blöndu þannig að íslenskir lífeyrissjóðir og erlendir innviðasjóðir komi að verkefnunum.