samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég held að það sé nefnilega lykilmálið, eins og ég kom inn á í fyrra andsvari, að það séu þær forsendur að löggjöfin sé með þeim hætti að erlendir innviðasjóðir, erlendir lífeyrissjóðir og aðrir sjóðir geti hugsað sér að koma inn í innviðaframkvæmdir á Íslandi til 30–40 ára, að opna landið fyrir því. Ég held að það sé lykilatriði. Þess vegna þarf að skilgreina þetta rosalega vel, móðurfélagið, dótturfélögin, einstök verkefni inni í dótturfélögunum, að það sé raunverulega ekki þessi vafningshugsun, að vera með mörg verkefni undir, heldur að vera með þetta í því samhengi. Fljótagöng voru t.d. upprunalega inni í málinu frá ráðherra en það hefur kannski vatnað svolítið undan því núna vegna þess að það er svo lítill tekjustraumur upp í framkvæmdina í tengslum við Fljótagöng og óvíst hvernig það mun ganga. Þess vegna vilja ekki erlendir sjóðir eða íslenskir lífeyrissjóðir tengja þetta saman við kannski Sundabraut eða Ölfusárbrú. Ég held að þetta sé hugsun sem verði að ná í gegnum löggjöfina, að þannig sé að málum staðið.