samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir og ég held að við séum 100% sammála. Þetta er gríðarlega mikilvægt. Mig langar hins vegar að segja að persónulega finnst mér vanta aðeins upplýsingar um þessa vafningshugsun, af hverju þau eru ekki tilbúin að segja að hvert verkefni sé inni í dótturfélagi. Það kann að vera, eins og ég sagði áðan, að það sé allt í lagi að þú sért að leita að fjárfestingum fyrir þrjú félög, en ég óttast að hugmyndin sé einhvern veginn að reyna að blanda þessum óarðbæru verkefnum inn í, gera pakkann óspennandi til að ná þeim inn í C-hlutann og fela svolítið raunverulegar skuldir ríkissjóðs. Mér hugnast það ekki af því að þá held ég að það sé bara betra að hafa raunverulegu stöðuna uppi á borðinu. Ég held því að við þurfum aðeins að skoða þetta betur.