samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér samgönguáætlun. Ég hef reynt að leggja mig fram við það að taka til máls í samgönguáætlun frá því að ég tók sæti á þingi. Það er sérstaklega vegna þess að áður en ég tók sæti á þingi þá fylgdist ég stundum með umræðum um samgönguáætlun og mér fannst alltaf einkenna þessa umræðu að um samgönguáætlun tækju bara til máls þingmenn landsbyggðarinnar. Þegar verið var að ræða um almenningssamgöngur var einna helst verið að ræða um flug og ferjur, þannig að, virðulegur forseti, ég ætla aðeins að taka hér til máls. Ég ætla að byrja á því að segja að mér þykir nefndarálit meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar, eigum við segja, hófstilltara og kannski skynsamara í orðræðu heldur en þegar samgönguáætlun sjálf var kynnt því þá fóru fulltrúar ríkisstjórnarinnar stóran í stórum yfirlýsingum. Þetta var kallað að ræsa vélarnar, það var haldinn kynningarfundur og nú átti allt að fara af stað. Yfirlýsingar um hitt og þetta sem loksins ætti að komast í framkvæmd voru látnar fljúga og að uppbyggingin væri fram undan og að nú skyldu hendur standa fram úr ermum í samgöngumálum, byrjað yrði að bora og vegir loksins lagðir. Svo liðu tæpir fimm mánuðir og fjármálaráðherra hefur í millitíðinni lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 þar sem dregið er úr fjárframlögum til samgöngu- og fjarskiptamála á áætlunartímabilinu.
Á sama tíma hefur almenningi verið talin trú um að tekjur af nýjum sköttum á atvinnulíf og auknum álögum á heimilin eigi að renna beinustu leið til innviðauppbyggingar. Hér fer því ekki saman hljóð og mynd. Veiðigjöldin voru til að mynda hækkuð umtalsvert síðasta sumar og því lofað að tekjurnar skyldu skila sér til frekari uppbyggingar samgönguinnviða með áherslu á landsbyggðina. Kílómetragjaldið og hækkun vörugjalda á ökutæki áttu sömuleiðis að tryggja aukið framkvæmdafé. Nú er svo jafnvel stefnt að því að bæta veggjöldum og flýtigjöldum í púkkið. Hið svokallaða innviðafélag á svo að brúa þar sem enn vantar upp á. Við ræðum nú kannski innviðafélagið betur síðar í vikunni eða í næstu viku en það er áberandi að kannski þessi svæði sem finna líklega hvað mest fyrir — ef við tökum nú bara þá skattahækkun sem lögð var mikil áhersla á hér síðasta sumar og varðaði veiðigjöldin, þá eru það líklega Austfirðir og Vestmannaeyjar.
Virðulegur forseti. Ég fékk tækifæri til að heimsækja þessa tvo staði nýverið, fyrir nokkrum vikum síðan, byrjaði á Austfjörðum þar sem frambjóðendum fannst sérstaklega áhugavert að keyra með mig yfir Öxi og láta mig hossast þar og finna fyrir því hvað þessi vegur væri illa farinn. Það að keyra innan Múlaþings, því þar er eitt sveitarfélag, frá Egilsstöðum og yfir Öxi gerði það að verkum að það er ljóst að það er veruleg þörf á uppbyggingu innviða þarna.
Ég sé í nefndaráliti meiri hlutans að hér sé verið að færa eitthvað til fjármuni sem veldur því vonandi að hægt sé að ráðast í þá mikilvægu framkvæmd. Þegar þú kemur í Múlaþing, sem Seyðisfjörður tilheyrir líka, er auðvitað mikil reiði. Hún er skiljanleg því að því hefur verið lofað lengi að Fjarðarheiðargöng væru næstu göng sem farið yrði í en því er auðvitað snúið á hvolf í þessari áætlun. Þess vegna er þetta með að ræsa vélarnar einkar áhugavert vegna þess að þeim göngum sem þó hefði verið hægt að fara í sem fyrir lá hönnun á, og hefði verið hægt að hefjast handa við að bora strax, var frestað. Í staðinn er verið að fara að hanna önnur göng annars staðar. Ef við ætlum raunverulega að ræsa vélarnar hefði verið hægt að byrja að bora Fjarðarheiðargöngin og byrja svo að hanna næstu göng þar á eftir.
Ég nefndi hér líka Vestmannaeyjar og þar hefur auðvitað verið uppi alveg ofboðslega sérstakt ástand. Við erum með Landeyjahöfn sem því miður hefur ekki virkað sem skyldi en þegar hún virkar og Herjólfur virkar þá er þetta allt saman í sæmilegum málum. Þessi vetur hefur verið einstaklega óheppilegur og ég hef því mjög mikinn skilning á þeirri kröfu Eyjamanna að það þurfi að leggja meira í samgöngur þeirra og tryggja að ferjan geti siglt frá Landeyjahöfn og út í Eyjar. Þess vegna furða ég mig á því að hér sé ekki brugðist við þeim aðgerðum sem Eyjamönnum hefur verið lofað. Ef ég skil þetta rétt þá eru núna sérfræðingar að störfum að skoða möguleika á dýpkun og því að laga höfnina og von er á því von bráðar en það er ekkert fjármagn hér í að bregðast við því sem þessir sérfræðingar myndu leggja til og aðgerðahópur eða hvaða nafn sem hann fær verður auðvitað ekki til þess að hægt sé að fara í einhverjar raunverulegar framkvæmdir.
Virðulegur forseti. Ég ætla þá kannski að snúa mér að mínu kjördæmi og fara aðeins yfir það sem þar er. Ég ætla að byrja á að segja að samgöngusáttmálinn sem gerður var milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins er alveg ofboðslega mikilvægur. Það var í rauninni tímamótaplagg þegar við náðum því að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkið gátu sameinast um ákveðna forgangsröðun mikilvægrar innviðauppbyggingar á svæðinu. Ég hef svo sem oft sagt þetta áður, virðulegur forseti: Það náði auðvitað ekki nokkurri átt hér áður fyrr þegar þingmenn kjördæmisins fóru á milli sveitarfélaga og það var verið að segja að hér þyrfti hringtorg og þar þyrfti mislæg gatnamót eða þarna þyrfti eitthvað annað, og allt tekið úr samhengi því að þetta er auðvitað eitt svæði og hér starfar fólk og býr sitt á hvað og keyrir á milli og það eru auðvitað hagsmunir heildarinnar að umferðarflæðið sé í lagi. Ég veit að það hefur verið unnin mikil og góð vinna í að greina þær þarfir og í kjölfarið verður svo til þessi verkefnalisti sem birtist okkur í samgöngusáttmálanum.
Það virðist vera orðin þjóðaríþrótt að tala niður þennan samgöngusáttmála, þá kannski sérstaklega þann þátt samgöngusáttmálans er lýtur að borgarlínu, almenningssamgöngunum. Þá er bara mikilvægt að við munum að þetta er heildstæður sáttmáli sem tekur á því að fara í nauðsynlegar og mikilvægar stofnvegaframkvæmdir. Hann tekur líka á almenningssamgöngum í borgarlínuverkefninu, hjóla- og göngustígum og umferðarstýringu og ekki hægt að taka einn lið einhvern veginn úr samhengi við heildarsáttmálann. Ég hef margoft sagt það, herra forseti, að borgarlínan ein og sér mun ekki bjarga eða leysa samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu en það er heldur ekki hægt að leysa samgöngur á höfuðborgarsvæðinu öðruvísi en með öflugum almenningssamgöngum. Það þarf sem sagt bæði verulega uppbyggingu í stofnvegaframkvæmdum og öflugar hágæðaalmenningssamgöngur sem hafa fengið nafnið borgarlína. Þess vegna er mikilvægt að það verkefni nái fram að ganga. Ég vona að — þrátt fyrir að það sé ákall um endurskoðun þá er nú ekki langt síðan samgöngusáttmálinn var endurskoðaður — þá verði það ekki þess valdandi að framkvæmdir frestist með neinum hætti vegna þess að ég held að allir landsmenn, það skiptir kannski ekki máli hvort þeir búa á höfuðborgarsvæðinu eða ekki, átti sig á mikilvægi þess að greiða fyrir umferð hér á höfuðborgarsvæðinu. Umferðartafir eru orðnar of miklar. Hér hefur íbúum fjölgað mun meira en ráð var gert fyrir hér fyrir einhverjum árum síðan. Það lítur ekki út fyrir að það verði einhver fækkun á svæðinu heldur er þvert á móti gert ráð fyrir töluverðri íbúðauppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum og áratugum. Það er einfaldlega ekki hægt að ráðast í þessa uppbyggingu og þetta skipulag öðruvísi en að horfa til samgangna á sama tíma.
Ég ætla að fá að nefna sérstaklega þá þéttingu og það skipulag sem á sér stað hér á Kársnesinu. Ef ekki væri að koma til brúin frá Kársnesi hér yfir á háskólasvæðið sem tengist auðvitað líka Landspítalasvæðinu og miðbæjarsvæðinu þá væri engan veginn hægt að taka alla þá umferð fólks sem þyrfti að fara þarna á milli yfir á stofnvegi. Það myndi ekki ganga upp. Að sama skapi ætla ég að nefna Blikastaðaland í Mosfellsbæ sem er framtíðarbyggingarsvæði. Marga kann að undra að þar hafi ekki verið byrjað að byggja fyrir einhverjum árum eða áratugum síðan því það er auðvitað það landsvæði sem tengir Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ saman. Þar er fyrirhuguð umtalsverð uppbygging íbúðarhúsnæðis, eitthvað af atvinnuhúsnæði líka en aðallega íbúðarhúsnæði, og það er einfaldlega ekki hægt að ráðast í uppbyggingu á því landi nema að byggja upp samgöngumannvirkin samtímis þannig að umferðin — Vesturlandsvegur og Ártúnsbrekkan ræður hreinlega ekki við þá umferð sem kemur af Blikastaðalandinu, ég tala nú ekki um fyrirhugaða fjölgun líka í Úlfarsárdal og í Grafarvogi þannig að það er algjörlega nauðsynlegt í öllum þessum uppbyggingarverkefnum að samgöngurnar fylgi. Þá þarf bæði stofnvegaframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru en ekki síður öflugar almenningssamgöngur. Þetta tvennt verður að fara saman.
Virðulegur forseti. Mig langar líka að nefna að það voru auðvitað ákveðin verkefni sem voru sett inn í samgöngusáttmálann. Það þýðir ekki að það séu engin önnur verkefni á höfuðborgarsvæðinu sem þurfi að fara í. Mig langar að koma hér aðeins niður á umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þar sem auðvitað er rætt um samgöngusáttmálann og mikilvægi þess að hann nái fram að ganga en hér eru líka nefnd önnur verkefni. T.d. er fjallað hérna um Skálafellsveg því hann er algjörlega ótækur eins og staðan er núna og það hefur verið fyrirhuguð uppbygging í Skálafelli. Ég ætla að minna á að þar er frábært tækifæri til að byggja upp annað skíðasvæði fyrir höfuðborgarsvæðið, og landsbyggðina alla svo sem, sem myndi nýtast mjög vel og kallast á við Bláfjöll og þar eru líka tækifæri til ýmiss konar annars konar útivistar, hvort sem er á vetri eða sumri. En til þess að hægt sé að fara í slíka uppbyggingu þá þarf að fara í vegbætur á þessu svæði og það er á umsjón Vegagerðarinnar.
Hér er líka nefndur Elliðavatnsvegur sem er frá Kaldárselsvegi að Vífilsstaðavegi. Þetta er vegur sem er í veghaldi Vegagerðarinnar. Þarna hafa í gegnum tíðina verið einhvers konar átök um ofanbyggðaveg, hvað hann ætti að þola og annað en ég hygg að það liggi fyrir sæmileg sátt á milli sveitarfélaganna núna um það hvers eðlis þessi vegur eigi að vera. Til þess að hægt sé að klára það er algerlega nauðsynlegt að fjármagn fylgi inn í þessa framkvæmd. Í þessari samgönguáætlun sem liggur fyrir er einungis gert ráð fyrir kostnaði við frumhönnun á umræddum vegi en það er mikilvægt að fjármagn verði sett í veginn strax þannig að hægt sé að hefja framkvæmdir við þá kafla sem er mjög áríðandi að laga vegna þess að þarna er bara ákveðin umferðaröryggishætta vegna þess að umferðin um þennan veg og þetta svæði er orðin mun meiri heldur en vegurinn var nokkurn tíma byggður fyrir.
Hér er líka fjallað um Bláfjallaveginn þar sem SSH og Vegagerðin hafa átt samstarf um rýni á því að opna Bláfjallaveginn frá janúar 2023. Þetta felur í sér að unnið verði kostnaðarmat, hönnun og áhættumat vegna vatnsverndar. Jafnframt verði horft til hlutverks vegarins með hliðsjón af vara- og flóttaleiðum á höfuðborgarsvæðinu. Vegagerðin vann gróft kostnaðarmat í mars 2022 þar sem kom fram að endurgerð vegarins til að hann uppfyllti helstu kröfur kostaði um 1,5–2 milljarða. Framkvæmdir á veginum eru ekki ráðgerðar í fyrirliggjandi samgönguáætlun. Þetta er annað sem mikilvægt er að horfa til og ég get því miður ekki séð þess neinn stað í nefndaráliti meiri hlutans að einhverjar breytingartillögur séu á umræddri samgönguáætlun hvað þessa þætti varðar.
Virðulegur forseti. Því hefur gjarnan verið haldið fram í orðræðunni að um sé að ræða fullfjármagnaða samgönguáætlun. Ég ætla að fullyrða að svo sé ekki. Það er ekki svo. Þegar horft er til þess fjármagns sem liggur fyrir í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar, sem er reyndar enn í meðförum þingsins, þá er ekki fjármagn í þessar framkvæmdir sem hér er lofað í þessari samgönguáætlun. Þá kemur til, og það er kannski svona hókus-pókus stjórnarliða, að tala þá um þetta innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að vera ósammála því að við stofnum innviðafélag og finnum aðrar leiðir til að framkvæma mikilvæga innviðauppbyggingu. Ég hef sjálf talað fyrir slíku en enn sem komið er hef ég ekki fengið neina skilgreiningu á því hvernig þetta á að virka. Ef verið er að tala um að færa þegar unnin innviðaframkvæmdaverkefni inn í þetta félag — nefnd hefur verið Reykjanesbrautin eða Hvalfjarðargöngin eða Vesturlandsvegur eða eitthvað slíkt, svo að félagið geti þá tekið lán út á þessar eignir — þá er, eins og birtist í greinargerðinni með innviðafélagsfrumvarpinu, möguleiki á því að hægt sé að fara að rukka gjald á þessum þegar framkvæmdu mikilvægu innviðum. Því hafa stjórnarliðar aftur á móti algerlega neitað og sagt að það standi ekki til. Við förum kannski dýpra í þessari umræðu um innviðafélagið á morgun eða einhvern tímann á næstu dögum en þetta verður auðvitað að liggja skýrar fyrir. Það er ekki hægt að lofa miklum framkvæmdum þegar búið er nú þegar að hækka skatta og lofa því að það eigi að fara í þessar framkvæmdir, þess sjást samt ekki merki í fjármálaáætluninni en segja: Við ætlum samt að fara í þessar framkvæmdir af því að við ætlum að búa til eitthvert innviðafélag. Það verða ekki til neinir peningar við það eitt að búa til félag. Það held ég að öllum ætti að vera ljóst. Það verða að liggja fyrir einhverjar frekari skýringar og skilgreiningar á því hvernig þetta er allt saman gert.
Ég veit að hér í dag hefur orðið ágætisumræða um kostnað, veggjöld og annað og ég get sagt að hér fyrir einhverjum árum síðan, til að mynda þegar unnið var að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, var nefnt að það væri hægt að framkvæma slíka uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu með einhverju sem var talað um, mig minnir að flýtigjald hafi verið orðalagið sem hafi verið endað á að nota. Það var á þeim tíma þegar það var ekkert verið að rukka neitt kílómetragjald. Það eina sem þú borgaðir var það sem þú borgaðir fyrir olíuna á dælunni. Það var ekkert annað. Það er auðvitað ekki hægt að vera hér kominn með kílómetragjöld á allar bifreiðar og ætla svo að tala um einhverja gjaldtöku í tengslum við innviðafélagið á nýframkvæmdum, nú eða þegar framkvæmdum vegum og svo líka eitthvað sem á að heita flýtigjald. Það hlýtur öllum að vera ljóst.
Ríkið hefur skuldbundið sig, eins og í samgöngusáttmálanum, til að fjármagna ákveðnar framkvæmdir og það er gott og það er mikilvægt. Við þurfum öflug samgöngumannvirki bæði á höfuðborgarsvæðinu og um land allt. Ríkið verður að finna leiðir til þess og ég get nefnt eina hugmynd: Við gætum selt Landsbankann og fengið þar fjármagn sem við gætum umbreytt yfir í mikilvæga innviði sem allir myndu njóta.
Að þessu sögðu, virðulegur forseti, er auðvitað margt gott í samgönguáætluninni og ég held að flestir geti sameinast um mikilvægi þess að ráðast í slíka innviðauppbyggingu. Ég þekki það sjálf, hafandi verið í stjórnarmeirihluta, að það er erfiðara að koma öllum þessum óskalistum, öllu sem við viljum gera, inn í rammann heldur en að eiga svo fjármagn fyrir því þannig að ég hef alveg skilning á því verkefni ríkisstjórnarinnar. Ég ætla að fagna aðeins hófstilltari umræðu sem mér hefur fundist vera núna eftir að þingmenn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd ráku sig á að þetta er flóknara en það virðist því hér voru mjög háværar yfirlýsingar í upphafi þegar þessi samgönguáætlun var kynnt, miklar yfirlýsingar um að fyrri ríkisstjórn hefði náttúrlega ekki gert neitt. Ég ætla sjálf að segja það, hafandi stutt fyrri ríkisstjórnir, að hvað er þetta, um 500 milljarðar sem fóru í það að bregðast við eldum á Reykjanesskaga og Covid? Það hefði alveg verið gaman ef við hefðum getað notað þessa 500 milljarða í göng eða uppbyggingu vega, klárlega, en á þeim tíma var það mikilvægara og ég held að enginn mæli þess bót í dag að segja: Heyrðu, við hefðum ekki átt að bjarga ferðaþjónustufyrirtækjum eða heimilunum í landinu þegar Covid skall á. Engan hef ég heyrt tala gegn því að keyptar voru upp fasteignir í Grindavík og byggður upp varnargarður utan um Svartsengi þegar öllu er á botninn hvolft. Svoleiðis er það auðvitað að því miður hafa á síðustu árum umtalsverðir fjármunir farið í eitthvað annað en við hefðum kannski helst kosið, að bregðast við krísuástandi og neyðarástandi, þannig að ég óska auðvitað bara hæstv. ráðherra alls hins besta í að fara í uppbyggingu mikilvægra innviða. Ég get gagnrýnt forgangsröðunina en ég get líka hrósað ýmsu sem hér kemur fram og mikilvægast er auðvitað að við sameinumst um að fara í raunverulega uppbyggingu innviða, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu.